23. desember
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
19. desember lét nýr fjölskyldumeðlimur loks sjá sig! Aðdragandinn var ekki svo langur, við fórum upp á spítala upp úr tíu á miðvikudagsmorguninn og snáðinn fæddist klukkan 13:00.
Ástþór Örn var ekki á leikskólann þennan morgun. Loks var svo komið að því að vera hjá afa og ömmu á meðan við færum á spítalann!! Ástþór Örn átti einmitt gullkorn á leiðinni í bílnum til afa og ömmu.
Ég var eitthvað að þusa yfir rauðum ljósum og hvað Sigurður slysaðist inn á í útvarpinu á milli hríðanna þegar ég heyri Ástþór Örn segja "ja, mikið er ég nú glaður að vera ekki svona mamma"...æ ég skildi hann bara vel!!!
Hann var svo ægilega glaður þegar hann fékk fréttirnar, þó hann hafi nú verið alveg viss um það að von væri á systur. Sniðugast fannst honum að litli bróðir skyldi nú einmitt velja 19. dag mánaðarins eins og hann forðum.
Þeir nafnar spiluðu svo fótboltaspil, sem afi hafði keypt handa þeim bræðrum og því var Ástþór Örn ekki síður spenntari að tikynna um markatölur þegar við heyrðum í honum seinna um daginn.
En hér koma nokkrar myndir frá fæðingardeginum sjálfum og nokkrar teknar hér heima undan farna daga.
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()

Nýkominn í heiminn!

Mæðgin aðeins að ná áttum! Ég var keyrð á skurðstofuna nokkru síðar...og vinsamlegast beðin um að prófa að eiga stelpu næst!!

Þessi myndardrengur reyndist 4025 grömm sem eru 16 merkur og 53 cm.

Okkur þykir þessi litli snáði minna okkur um margt á stóra bróður hans nýfæddan, en fyrst og fremst er hann bara líkur sjálfum sér!

Við fengum að fara heim á fimmtudag, með þeim skilyrðum að lífinu yrði tekið með mikilli ró.
Þar sem börnum undir fermingu er meinað að koma í heimsókn á fæðingardeildina núna yfir
versta pestatímann hittust þeir bræður fyrst hér heima á fimmtudagskvöldið.
Ástþór Örn svooo stoltur og leist voðalega vel á þennan fallega litla bróður.

Sofið vært í vöggunni eftir heimkomuna

Í gær fékk svo Ástþór Örn að setjast með litla bróður sinn í fanginu.


Í gær barst okkur glaðningur frá Guðrúnu og fjölskyldu í Svíþjóð. Ástþór Örn tautaði nú eitthvað þegar pósturinn kom með
pakkann að það væri nú orðið ansi langt frá því hann hefði fengið pakka sendan. Hann varð því heldur en ekki glaður þegar upp
úr kassanum komu pakkar til hans, Múmínsnáðaendurskinsmerki og þessi fallega hreindýrafjölskylda. Guðrúnu Láru fannst tilvalið að
senda dýr sem finna mætti í Svíþjóð og það þótti Ástþóri Erni stórsniðugt hjá henni og var sagan orðin þannig hér í gær að
þetta væri eftirmynd af hreindýrafjölskyldu sem ætti hvorki meira né minna en heima í garðinum hjá Huga og Maríu í Svíþjóð.

Aðeins farinn að vaka þessi litlu kútur. Í ró og næði í vöggunni undir teppi sem
Guðrún Lára vinkona okkar sendi þessum litla herramanni. Ástþór Örn
var ekki hissa á því að Guðrún Lára væri formaður prjónafélagsins Pálínu þar sem
hún væri greinilega mjög klár að prjóna. Það vissi ég nú alveg!


Smá vindbros!

Í gærkvöldi þegar litli bróðir fékk að sitja aðeins hjá stóra bróður rann það fyrst upp fyrir mér
mömmunni að ég ætti orðið tvær svona óendanlega miklar dúllur!!
Ástþór Örn er voða jákvæður og ánægður með litla bróður sinn. Við finnum samt að sjálfsögðu fyrir
svolítilli spennu hjá honum, enda margt að gerast! Jólafríið ætlum við því bara að nota í afslöppun og
hleðslu á batteríunum.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það sem allra allra best
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()