Jólin 2006
Vonum að þið hafið öll haft það gott yfir jólin. Við erum búin að hafa það óskaplega notalegt. Fengum margt fallegt í jólagjöf og mikið af
góðum kveðjum, þökkum vel fyrir okkur.

Ástþór Örn fyrir framan jólatréð og alla pakkana hjá ömmu og afa í Langagerðinu

Ég mæli svo sem ekkert sérstaklega með því að vera fótalaus á hækjum svona rétt fyrir jólin!!

Ástþór Örn að flytja pakka undir tréð

Allt að verða klárt! Eins og ávallt heppnaðist jólamaturinn afskaplega vel. Humar í forrétt, Hamborgarhryggur og
villigæs í aðallrétt og svo ekta danskur ris a'lamande í eftirrétt.

Ástþór Örn var nú ansi þolinmóður en voðalega glaður þegar komið var að því að opna pakka!
Mikla lukku vakti slökkviliðsstöðin frá Ólíver frænda.

Ástþór Örn upprennandi slökkviliðsmaður?

Hér var svo gjöf til litla vinnumannsins frá bændunum í Dal! Ástþór Örn var heldur betur glaður með fjarstýrða gröfu
og vörubíl og tilkynnti afa og ömmu að þau væru bestu bændurnir!!!

Afi og amma voru líka voða spennt yfir pökkunum

Hjalli, Ingibjörg, Kolbrún, Gauti og Marteinn litu inn í Langagerðið í smá kvöldkaffi á aðfangadagskvöld.
Þeir frændur prufuðu kubba sem Ástþór Örn fékk frá Heiði frænku.

Mikið stuð og spenna þegar turn var reistur...fyrst náði hann hæð Ástþórs Arnar

svo Marteins!

Og þá varð spennan gífurleg yfir því hvort að hægt yrði að reisa turn jafn stóran og Gauti stórifrændi!!

Og það tókst með öllum 150 kubbunum sem í kassanum voru :o)

Hjalli frændi og Ástþór Örn
Notalegir dagar milli jóla og nýárs