Notalegir dagar milli jóla og nýárs

 

 

 

Amarylisinn í miklu jólaskapi

 

 

  

 

Ástþór Örn er búinn að hafa það afskaplega gott í jólafríinu, fékk frí á leikskólanum milli jóla og nýárs.

 

 

 

  

 

Og mest höfum við verið á náttfötunum. Hér vorum við mæðgin að spila slönguspil sem

hann fékk í jólagjöf. Vakti mikla lukku þar sem þau Dóra og Klossi koma við sögu!

 

 

 

Ástþór Örn situr hér spenntur og horfir á Móglí sem hann fékk í jólagjöf frá Viktori og Patrick.

Viktor er sjálfur í uppfærslunni og fannst Ástþóri Erni það stórmerkilegt...mestar áhyggjurnar hafði hann

af því hvort að hann Viktor frændi væri nokkuð að leika vonda karlinn!!

 

 

 

 

 

 

Við Ástþór Örn vorum að finna til dót til að taka í sveitina áðan. Ég stakk upp á því að við myndum aðeins taka smá pásu og slappa af...

þá sagði minn "ertu að meina svona jóga?". Ég bað hann því að sýna mér jóga, sem hann sagði að stundað væri á leikskólanum!!

 

 

Kominn í stellingarnar!! Ástþór Örn leiðbeindi okkur í gegnum hugleiðsluna "setjast í rólegheitum

og hugsa um kærleiksstjörnuna okkar".

 

 

Ekki var nú samt hægt að hanga í þessari slökun of lengi!

 

 

Eitthvað virðist nú lítið skraut á trénu frá þessu sjónarhorni! En það er nú vel skreytt og

auk þess með ljósum sem sjást ekkert heldur!!!

 

 

 

Hafið það gott og við vonum að árið kveðji ykkur á góðum nótum og hið nýja renni ljúflega í garð!