Haustferð í Dal í lok október

 

 

Ansi langt síðan við höfum farið í sveitina. Búin að ætla undan farnar helgar, en alltaf hafa plönin eitthvað breyst. Leikskólinn var lokaður á föstudaginn og lögðum við af stað um hádegi þann dag. Komum í Dal í vetrarstemmningu en yfirgáfum sveitina í himnesku haustveðri. Tókum heilmikið af myndum, njótið vel!

 

 

 

Snjór yfir öllu þegar við komum og kalt

 

 

 

Ástþóri Erni leiddist vetrarstemmningin ekki

 

 

 

 

Byrjuðum á að heilsa upp á hrossin neðan við Dal

 

 

 

 

 

Ástþór Örn var óskaplega glaður að hitta hann Frakk og fór að nefna það enn einu sinni hvort að ekki

mætti bjóða honum með heim í Kópavog!

 

 

Settist aðeins á bak

 

 

Ástþóri Erni fannst hinn mesti óþarfi að halda svona við hann og stakk upp á því að við hittum

bara við nýja veiðihúsið!!

 

 

Frakkur kannski átt bágt með að trúa því að við ætluðum ekki að staldra við svolítið lengur?

 

 

 

 

Ástþór Örn voða oft kominn ansi langt á undan...til þó nokkuð margar myndir af honum

einmitt á þessum stað kominn fram úr okkur!

 

 

Skoðuðum húsið sem afi Ástþór hefur verið að gera upp í haust.

 

 

Eitt augnablik eygðum við þá von að geta kannski bara ræst snjósleðann um helgina

 

 

 

 

 

En eftir hávaðavind og mikla rigningu aðfararnótt laugardags vöknuðum við í yndislegu haustveðri á laugardagsmorgun.

Það var ekki mikið eftir af snjókúlunni frá því deginum á undan!

 

 

 

Enda hefði nú verið leiðinlegt að ná ekki almennilegri hausthelgi með haustlitum svona áður en veturinn gengur í garð

 

 

Á laugardagsmorguninn litum við aðeins aftur til hrossanna, enda séð ansi lítið af þeim undan farið.

 

 

Þeir Léttir, Skuggi og Frakkur búnir að ná sér í góðan forða fyrir veturinn :o)

 

 

 

Ástþór Örn fær "far" upp brekkuna

 

 

 

Svo var farið í fjárhúsin til að gefa þeim kindum sem komnar eru í hús

 

 

 

 

 

 

Næsta verk var að líta til meranna og folalda! Þarna er hún Hnota lengst til hægri. Hún hefur vaxið mjög mikið og mætti

halda að hún væri veturgömul en ekki síðan í lok maí.

 

 

 

Þeir feðgar heilsuðu upp á merarnar og gáfu þeim smá mola. Þetta merarforald er síðan í byrjun ágúst.

 

 

Þær mæðgur Hnota og Elva voru nú ekkert á því að koma of nálægt

 

  

 

 

Ástþór Örn kominn í útiverkin!

 

 

 

Kominn inn í hádegismat, með uppáhaldið reyktan lax með hrognum!

 

 

 

En við vorum fljótlega komin út aftur og drifum okkur í góðan göngutúr

 

 

 

 

 

 

Svolítið erfitt að brosa framan í myndavélina með sólin í augun!

 

 

 

 

Keppnin um stífasta myndabrosið!!!

 

 

 

Eftir göngutúrinn týmdum við ekki alveg strax inn. Ástþór Örn lék sér í sandkassanum...

 

 

en við settumst út og lásum í góða veðrinu!

 

 

Fleiri sveitamyndir