Fleiri myndir úr Dal í október

 

 

 

Hituðum kakó og fengum okkur hvítt uppáhaldssúkkulaði þegar inn var komið.

 

 

Ástþór Örn að gera æfingar!!

 

 

Þetta bleika band var alveg málið um tíma og skapaðist mikil 80's stemmning við kvöldmatarborðið.

 

 

       

 

Eitt af atriðum Ástþórs Arnar um kvöldið. Stóð uppi á stól og söng "Upp á háum himinháum hól" með miklum tilþrifum!

 

 

Í morgun þegar við mæðgin fórum á fætur var sólin að koma upp og yndislegt veður

 

 

Ástþór Örn lét fara vel um sig og horfði á barnaefnið á meðan ég rölti einn hring úti og horfi á sólina koma upp!

 

 

 

 

Hafði kólnað svolítið og gróðurinn allur hrímaður

 

 

Ástþór Örn að lita í morgun. Gísli kom stuttu seinna og þá fannst Ástþóri Erni mál að drífa sig nú í föt og drífa sig út!

 

 

 

Myndavélin okkar ekki alveg að kunna á fallega haustbirtuna en þarna eru Gísli og Sigurður að ná járnunum undan hrossunum.

 

 

Við Sigurður teymdum þau svo niður á flatir til hinna hrossanna.

 

 

 

Ástþór Örn hjálparkokkur!

 

 

Eins og venjulega fannst okkur ekkert gaman að þurfa að fara úr sveitinni.

Eftir að hafa farið enn einu sinni í gegnum það með Ástþóri Erni að hann langi BARA að eiga heima í sveitinni

fékk hann sér lúr...eins og voða oft þegar keyrt er heim úr Dal :o)