Golfsíðan
|
Áþessari síðu eru myndir af golfvöllum ofl einnig eru hér upplýsingar og ofl um golfvelli sem ég hef spilað.
|
|
Við erum fjórir félagar að fara til suður Englands í fimm daga að spila golf, og er förinni heitið á golfvöll sem heitir South Winchester Golf club og er ca miðja vegu milli London og Southamton. Gistingu fáum við í Norskum sumarhúsum sem eru staðsett inn á vallarsvæðinu og eru vel útbúin með góðri verönd og heitum potti, Myndir og nánari upplýsingar munu síðan koma að aflokinni ferðinni. Þá erum við komnir heim og vægast sagt alsælir með ferðina völlurinn stóð undir væntingum og var mjög gaman að spila hann. Hann er í lengra lagi,miðað við það sem við erum vanir eða 6485 yardar af gulum teigum og 6750 af hvítum og 7086 af championship teigum. Brautirnar voru mjög góðar og allsstaðar góð lega á bolta ef hann var á annað borð á braut hins vegar var ekki alltaf gott að lenda utan brautar, þó er ekki mikið um vandræði lítið af trjám nema menn væru því villtari,enda völlurinn skilgreindur sem Inland Links Course. Betra var að forðast glompurnar þegar nálgaðist flatirnar því víða er hátt upp úr glompunum upp á flötina, en á móti kemur að flatirnar eru frekar stórar. Upplifunin af vellinum var í stuttu máli mjög góð og hann er hafður eins náttúrulegur og mögulegt er og allsstaðar stutt á milli flatar og næsta teigs eina labbið er af níundu flöt yfir á þá tíundu, enda er mikið lagt upp úr að leikhraða sé haldið og eru gefnar 4klst og fimmtán mínútur á völlinn, og gekk mjög vel að halda því þrátt fyrir talsverða umferð. Hiklaust er hægt að mæla með þessum velli umhverfið fallegt og vel hirt, flott útsýni af flestum teigum og fjölbreytni í teighöggum, samt allsstaðar hægt að nota driver ýmist undan brekku á upphækkuðum teigum eða slegið upp á móti halla, margar flatir standa hærra en brautir og því vissara að taka rétta kylfu úr pokananum til að forðast glompurnar sem margar hverjar eru erfiðar. Sem sagt völlur sem óhætt er að mæla með. Í kynningu vallarvísis stendur að völlurinn hafi opnað 1993 og hafi á þeim tíma aflað sér þess orðspors að vera einn af bestu heilsárs völlunum á svæðinu, og þess er getið að Hampshire PGA hafi af þessum sökum komið sér upp höfuðstöðvum á vellinum en þeir eru með skrifstofu og fleira við hlið klúbbhússins. Mjög góð PRO SHOP er þarna og virtist okkur hún vera í ódýrari kantinum miðað við margt sem við höfum séð annarsstaðar. Gistingin stóð heldur betur undir væntingum og væsti ekki um okkur þessa daga allt til alls í húsunum möguleiki á nettengingu fyrir 10 pund aldeilis frábært að gista þarna og öll aðstaða til fyrirmyndar. Stutt í matvöruverslun með leigubíl og auðvelt að afla sér aðfanga í mat og drykk. Getum mælt með því að menn skoði þennan möguleika því þrátt fyrir gengishrun og hremmingar þá kostaði ferðin okkur ekki nema rétt rúm 100 þús á mann með öllu og þykir okkur það vel sloppið.
. South Winchester golf club smá lýsing sem ég hef tekið saman. smellið hér Heimasíða vallarins er http//www.southwinchestergolf.co.uk Heimasíða gistingar er http//www.southwinchesterlodges.co.uk
|
| Einnig spiluðum við í ferðinni gjörólíkan völl sem er þarna rétt hjá sem heitir Royal Winchester Golf Club og er hann einn af 42 völlum á Bretlandseyjum sem ber Royal titilinn. Saga er í klúbbsins stuttu máli þessi, stofnaður árið1888 en færður á núverandi vallarstæði árið 1901 sem sé gróinn og sögufrægur klúbbur. Völlurinn er staðsettur 2 km frá miðbæ Winchester sem er hin forna höfuðborg Englands og hefur að geyma mikla sögu af kóngum til forna og er dómkirkjan í bænum 900 ára gömul. En aftur að vellinum hann hlaut Royal nafnbótina þann 2 janúar árið 1913 og það gerði Konungur Georg V formlega, en áður en af því varð hafði frændi hans Hertoginn af Connaught (sjöunda barn og þriðji sonur Drottningar Victoriu og talinn uppáhaldssonur hennar) gefið leyfi fyrir nafnbótinni sem verndari vallarins árið 1893. Titillinn var síðan staðfestur af innanríkisráðuneytinu árið 1912 og formlega frágenginn eins og áður sagði af Konungi Georg V árið 1913. Völlurinn er á mjög fallegum stað og er mjög hæðóttur og ekki eins auðveldur yfirferðar og South Winchester enda gjörólíkur í alla staði, nema ef vera skyldi að mjög lítið er hreyft við landslagi og náttúran látin spila aðalhlutverkið, þó eru flatir settar utan í hlíðar t.d á tíundu og er eins gott að hitta þá flöt. Völlurinn er par 71 af gulum teigum 6028 yardar en par 70 af hvítum 6234 yardar af rauðum er parið 72, 5527 yardar. Það var mjög gaman að spila þennan völl og það sem okkur fannst betra á þessum velli var að flatirnar voru betur grónar og virtust koma betur undan vetri en á South Winchester og stafar það sennilega af því að spilað er á vetrarflatir hluta vetrarins. Að öðru leyti var upplifunin af vellinum mjög góð en talsvert erfiðari yfirferðar, enda voru allir sem við sáum með rafmagnskerrur. Klúbbhúsið stendur í brattri hlíð ofan við 18 flötina og er frábært útsýni af svölunum, klúbbhúsið og öll aðstaða er tiltölulega ný þar sem gamla klúbbhúsið eyðilagðist í bruna árið 1994 og nýja húsið kom í gagnið 1995. Óhætt að mæla með þessum velli en betra að vita ef menn ætla í klúbbhúsið að leik loknum þá verða menn að hafa skó til skiptanna því ekki eru leyfðir golfskór þar. |
|
Remedy Oak er tiltölulega nýr golvöllur í Ringwood, Dorset á Englandi rétt norðan við Bournemouth í útjaðri náttúrverndarsvæðisins New Forest og var tekinn í notkun árið 2005 og komst í fyrra inn á lista yfir top 100 á Írlandi og Bretlandseyjum og var þar í 89 sæti. Völlurinn er skógarvöllur 7,005 yardar par 72 og er landslagið látið njóta sín og völlurinn hafður eins náttúrulegur og kostur er. Mikil fjölbreytni í holum talsvert um að vatn spili stórt hlutverk, fjölbreytni mikil í landslagi og eins gott að hitta boltann vel þegar fara þarf yfir vatn eða órækt þar sem pottþétt tapast bolti ef ekki tekst þokkalega til. Það var í einu orði sagt frábært að spila völlin og voru flatirnar sérstaklega flottar og góðar. Frekar dýrt er að spila völlin og eru félagar aðeins 400 talsins en má segja að það segji sína sögu um standardinn á vellinum. |
|
Remedy Oak myndir af brautunum sem teknar eru af heimasíðu klúbbsins. Smellið hér Heimasíða klúbbsins er http//www.remedyoak.com
|