Heim

Í gegn um árin þá hefur það víst loðað við mig að ég hef einhverra hluta vegna laðast að svona útileguvinnu verið að vinna í svona stórframkvæmdavinnu jarðgöngum, virkjunum og einhverju svipuðu og greinilega hefur það átt nokkuð vel við mig því að ég er búinn að vera viðloðandi svona lagað í nokkur ár.

Þar sem þessar framkvæmdir eru svona aðeins öðruvísi en þessi hefðbundna byggingarvinna þá datt mér í hug að setja inn nokkrar myndir frá þessum tíma sem ég er búinn að vera að þvælast í þessu og er búinn að setja nokkrar hér inn á síðuna ca 450 stk. sem ykkur er velkomið að berja augum,

 
Smá sýnihorn af því sem síðan inniheldur.

Héðinsfjarðargöng..

Tímabilið 2008 - 2010 starfaði ég við smíðar, verkstjórn, klæðningarvinnu og ýmislegt annað hjá fyrirtækjunum Háfelli og Vatnsklæðningum við framkvæmd Héðinsfjarðargangna.

Þessi framkvæmd sem tengir saman Ólafsfjörð og Siglufjörð samanstendur af tvennum jarðgöngum Siglufjarðarmegin um 3,4 km og Ólafsfjarðarmegin 6,7 km ásamt 4 vegskálum frá 75 til 145 metrum á lengd, plús veglagningu samtals 16 km sem styttir leiðina milli þessara staða um 46 km. sjá meira með því að smella hér eða á myndirnar hér fyrir ofan.


Hraunaveita..

Á árunum 2006 - 2008 vann ég sem verkstjóri og yfirverkstjóri við gerð loku og inntaksmannvirkja við Upsa og Hraunaveitur en á þessum tíma var bæði unnið að gerð inntaks við aðrennslisgöng Jökulsárveitu, botnrás, stíflugerð, jarðgangnavinna ásamt töuverðri annari vinnu á þessu svæði.
Á þessum tíma var ég yfirleitt alltaf með myndavélina á mér ekki bara til að taka myndir fyrir sjálfan mig heldur þurfti oft að geta gripið í vélina vinnunnar vegna.
Vinnusvæðið var nokkuð víðfemt þannig að eftir að hafa unnið á þessu svæði í tæp tvö ár og þurft að sinna verkefnum víða um svæðið og margoft gripið í myndavélina þá átti ég orðið nokkrar myndir af vinnusvæðinu og hef sett nokkrar hér inn til að fleiri geti skoðað þær. smellið hér eða smellið á myndirnar hér fyrir ofan.


Kárahnjúkavirkjun.
stöðvarhúsið í Fljótsdal.

Í September 2004 skellti ég mér austur á land og fór að vinna hjá fyrirtækinu Fosskraft við byggingu stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar sem er staðsett um einn kílómetra inni í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal og að sjálfsögðu var myndavélin tekin með öðru hvoru og sett á stafrænt form og hér er ég búinn að setja inn góðan slatta af myndum endilega kíkja á þær smellið hér eða smellið á myndirnar hér fyrir ofan.


Vatnsfellsvirkjun.

Haustið 1999 var skellt sér upp á fjöll og farið að vinna við byggingu Vatnsfellvirkjunar og að sjálfsögðu var myndavélinni brugðið á loft öðru hvoru og hér er ég búinn að setja hér inn eitthvað af myndum frá því þegar ég var að vinna þar og ég er viss um að einhverjir hefðu gaman af því að kíkja á þær. smellið hér eða smellið á myndirnar hér fyrir ofan.


 


Til baka efst á síðu


 

eXTReMe Tracker