Rhodos

Við brugðum okkur í dagsferð til Rhodos frá Tyrklandi. Nutum dagsins vel og langar að fara aftur og dvelja svolítið lengur.
Ástþór Örn spenntur að skreppa til Grikklands. Annars mátti hann ekkert vera að því að spjalla við okkur
á leiðinni. Það voru þarna litlar finnskar systur fyrir aftan okkur sem honum þótti mun skemmtilegri
félagsskapur!!
Gamli bærinn í Rhodos er allur innan múrs, enda ekki alveg sömu rólegheitin
við eyjuna á öldum áður og nú er.
Mætt í gamla bæinn
Gengum af okkur helstu túristastaðina og fundum þá ansi notalegt kaffihús
þar sem við settumst og fengum okkur morgunmat. Ég fékk mér Spinakopita
sem mér þótti vel við hæfi í minni fyrstu heimsókn til Grikklands!
Ástþór Örn fékk sér gríska jógúrt með ávöxtum og hunangi.
Ástþór Örn hafði mikinn áhuga á þessum kassa. Þessi var svona sem í er settur peningur og maður á að reyna að
krækja í hluti...með misjöfnum árangri! Við höfðum nú ekkert reynt við maskínuna með pening en það kom
fljótlega í ljós að hún virkaði ekki og farið var að gera við!
Ástþór Örn var því fljótur að skerast í leikinn
Kassanum var svo komið í gang og prófuð. Ástþór Örn fékk svo gripinn sem var veiddur, forláta vagn sem dreginn er
áfram af gullhesti!
Ekkert verið að leyna því að hér væri verið að reyna að ná inn ferðamönnum!!
Þetta er gamla bókasafnið í bænum. Fyrir innan var himneskur garður
utan um bókasafnshúsið sjálf.
Gamli kastalinn
Aðalhliðið inn í gamla bæinn
Margar ansi sætar götur sem væri gaman að rölta einhvern tímann
Á Rhodos er endalaust af fallega skreyttum hurðum
Og margir kettir líka!
Einhver kjarkaður að skilja bílinn bara eftir opinn!!!!! Þessa líka glæsikerruna.
Það var við hæfi að enda daginn þar sem við byrjuðum. Hjá vinkonu okkar á kaffihúsinu. Skálað í Alfa...
og grísku hvítvíni! Þeir enn að bauka við kassann. Það var svo dásamlegt að rölta um Rhodos og sjá svona
grískar týpur frá ýmsum tímum. Við komum til að mynda auga á Zorba, Mariu Callas og sjálfan Sókrates!!
Þessir karlar minntu okkur helst á satýra úr goðsogunum. Kannski að þeir hafi bara verið sendir af guðunum
til að tryggja það að við ættum ánægjulegan dag? Þeir gáfu okkur í það minnsta gullvagninn!!

