Nokkrar
myndir af þeim bræðrum sem hafa haft í nægu
að snúast undan farið! Arnaldur Kári bauð okkur
á dansýningu og sýningu á því sem
þau á deildinni hans hafa verið að búa til og
vinna að í vetur. Tókst mjög vel en Arnaldur Kári
hafði skemmt okkur hér síðustu vikur með því
að syngja lögin sem var verið að dansa við. Ástþór
Örn var ægilega fúll að geta ekki fengið frí
í skólanum til að koma og horfa og sjá hvaða
dansar væru komnir nýjir inn síðan hann var!! Síðasta
laugardag voru svo vortónleikar í tónlistarskólanum
í Salnum. Það var gaman að sjá og heyra hvað
krakkarnir eru orðnir flinkir. Á morgun er þessi stóri
strákur svo að fara í flautupróf en kann sem betur
fer ekkert að vera að stressa sig neitt á því.
Mér var farið að líða eins og umboðsmanninum
hans þegar ég skutlaði honum upp í Gerðarsafn
í dag þar sem þau voru að spila ásamt fleiri
hópum úr tónlistarskólanum! Nú svo má
ekki gleyma því að veðrið hefur verið gott
og við getað verið heilmikið úti.
Frábærir
krakkar á Brekku tóku lagið áður en stiginn
var dans
Á
leikskólanum segja þau kisunni Perlu alls konar sögur
og læra líka ýmislegt af henni. Hér var verið
að velta því fyrir sér hver væru góð
og vond í ævintýrum og sögum, það svo
málað með ákveðinni tækni. Hér er
frásögn Arnaldar Kára...sem hefur gripið á
lofti Star Wars...nei ég meina Starvos-áhugastóra bróður.
Ein
af sjálfsmyndum Arnaldar Kára
Á
vortónleikunum í Salnum þar sem hópurinn spilaði
Óskasteina og Á Sprengisandi
Í
lokin sameinuðust allir hóparnir og spiluðu og sungu Vertu
til
Fyrsti
dagur vorsins þar sem hægt var að fara í stuttbuxur
Við
fórum svo í göngutúr og æfðum okkur
aðeins að hitta ofan í körfuna!
Arnaldur
Kári skemmti sér stórvel í rólunni
Æ
svo mikill krúsi þessi rólustrákur!
Amma
Kata og afi Ástþór færðu Arnaldi Kára
þessar fínu hákarlabuxur þegar þau
komu
heim frá Tyrklandi og hann vill helst bara vera í þeim
núna
Smá
framlenging til að ná í átt að körfunni!
Var
reyndar ekki svo langt frá því að hitta upp á
eigin spýtur!
Vaknaði
allt hér almennilega í góða veðrinu á
sunnudaginn og næstum hægt að sjá laufin á
trjánum stækka!
Þeir
bræður voru í fríi í dag, starfsdagar í
skóla og leikskóla. Það var því bara
slappað af fyrri partinn,
kubbað,
málað og undankeppni gærkvöldsins krufin...Arnaldur
Kári hélt með "Haba-hama" en verður víst
að
finna
sér annan fulltrúa fyrir laugardaginn!!
Svo
skelltum við okkur í Gerðarsafnið þar sem nokkrir
hópar úr Tónlistarskóla Kópavogs spiluðu
í
tilefni þess að nú var verið að endurútgefa
bókina Fimmtíu fyrstu söngvar sem var myndskreytt
af Barböru Árnason
en
nú stendur yfir sýning á verkum hennar í safninu.
Hlustuðum
á frábæra nemendur spila á þverflautur
og fiðlu svo eitthvað sé nefnt og skemmtum okkur vel