Páskar í sveitinni

 

 

 

Áttum gott páskafrí í sveitinni. Veður af öllu tagi en inni var jafn notalegt sama hvernig veðrið lét. Myndir, gjörið svo vel!

 

Ég dreif mig í sveitina með þá bræður í upphafi dymbilvikunnar. Margt dundað og leikiðog kom leirinn sterkur inn. Arnaldur Kári biður reyndar um að fá að "lirfa"!

 

Ástþór Örn bjó til þennan fína Kermit

 

Fallegasta veður í sveitinni á skírdag en það blés annars heilmikið hjá okkur, snjóaði jólasnjó og bara alls konar!

 

Ástþór Örn blæs sápukúlur á sumardaginn fyrsta en þess má geta að vetur og sumar frusu saman í sveitinni í ár

 

Páskamót í Þúsund

 

 

Ég dreif þær Pílu og Trýnu í "dömugöngu" á föstudaginn langa

 

 

 

Lóan mætt í sveitina í tugatali, hér stillir ein sér upp!

 

Páskaljómi!

 

Vöfflukaffi í sveitinni

 

Kúrt saman og fíflast svolítið líka!

 

Svo mikill dúlli : )

 

Páskaskákmótið, 1. umferð...Sigurður stóð uppi sem sigurvegari í ár...sem og einhver fyrri ár reyndar líka

 

Páskaganga farin niður að á

 

 

 

Þrátt fyrir hávaðarok, snjókomu og kulda var ég fullviss um að alla vega væri vorið komið þegar ég sémaríuerlurnar yndislegu flögra í kringum Dal. Það var einstaklega viðeigandi að þessar dúllur létu sjá sig á afmælinu hennarMaríu vinkonu okkar 23. apríl.

 

Páskaísinn útbúinn

 

...með muldum páskaeggjum...voðalega góður!

 

Vorum dugleg að fara í fjárhúsin. Hér er Ástþór Örn með hinni ótrúlega ljúfu Míu

 

Vindurinn sá um alla vinnuna við að blása sápukúlunum út um alla sveit

 

Og looooookins rann páskadagur upp. Í pappaeggjunum voru spil og smá nammi en svo tók hinn árlegi ratleikur við.

Í ár voru alls konar þrautir og gátur þannig að það tók nú svolítinntíma að leysa allt og finna eggin!

 

Arnaldur Kári sá fljótlega að Ástþór Örn var rosa góður í leiknum og fylgdi eftir..,þar til uppstoppaði laxinn

í herbergi afa varð hluti af leiknum þá var minn með á nótunum

 

Fundið!

 

Súkkulaðigleði...eldra eintakið á enn þó nokkuð eftir af sínu í ísskápnum!

 

Á leið í fjárhúsin að gefa á páskadagsmorgun...ansi vetrarlegt svo ekki sé meira sagt

 

Arnaldur Kári lét veður ekki stoppa sig og dreif sig í sandkassan þegar við komum úr húsunum.

Sandkassinn er því miður frekar illa útleikinn eftir óveður í vetur...það eða að tröll eða skessa hefur átt leið hjá!

Við ætlum að reyna að lappa upp á hann í vetur því það er nauðsynlegt að geta lokað kassanum...ekki út af köttum eins og

í borginni heldur til að varna því að allur sandurinn fjúki ekki úr honum!

 

Píla og Ástþór Örn fóru í smá gönguferð

Sumarið kemur í sveitina...bara seinna!

 

Sístækkandi páskaungar!

 

Ástþór Örn fór í páskafrí í tónlistarskólanum með það verkefni að æfa sérstaklega vel tvö lög sem hópurinn sem

hann er í ætlar að spila á vortónleikum í maí. Þetta eru lögin Á Sprengisandi og Óskasteinar (sem hefur lengi verið

uppáhaldslag Arnaldar Kára og hann því voðalega glaður að heyra það leikið hér á flautuna!). Ástþór Örn er duglegur að æfa sig

og finnst þetta mjög skemmtilegt. Það þarf því sem betur fer ekki að tuða um æfingar. Honum finnst líka gaman að æfa lög sem

eru ekki endilega hluti af prógramminu og í gær þegar ég átti afmæli gladdi hann mig með smá tónleikum og reyndi við Óðinn til gleðinnar...

ég má til með að deila því með ykkur! Hringdi reyndar síminn í miðju lagi þannig að hann fipaðist nú aðeins undir lokin ;)