Lok nóvember og 1. desember

 

 

Ekki kom ég því í verk að koma inn myndum á síðustu dögum nóvember en það kemur kannski ekki að sök þó þær birtist í desember þar sem þær eru ákfalega jólalegar margar hverjar! Allt gott að frétta af okkur, byrjað að undirbúa jólin í skólanum hjá Ástþóri Erni og á leikskólanum hjá Arnaldi Kára og við heima erum jú svona aðeins farin að undirbúa...

alla vega borða piparkökur og svona! En þetta kemur allt :o) Vonum að þið eigið öll notalega aðventu fram undan með stútfullum kökuboxum og heitu kakói.

 

 

 

Á sunnudaginn drifum við okkur í göngutúr um Elliðaárdalinn. Vel við hæfa að hefja aðventunna í snjónum þar!

 

 

 

 

Ástþór Örn ótrúlega hamingjusamur í snjónum

 

 

 

Arnaldi Kára finnst voða gaman að fara í göngu í skóginum

 

 

 

En oftast fara þeir bræður þetta á hlaupunum þó!

 

 

Arnaldi Kára tókst ekki stilla sér eins vel upp eins og Ástþóri Erni...

 

 

Þannig að hann settist bara í staðinn og nennti nú varla af stað aftur!

 

 

 

Eitt af uppáhaldstrjánum okkar orðið ansi jólalegt...já og þessi ægilegi töffari sem

náðist á mynd líka :o)

 

 

Ástþór Örn faldi sig í trjábyrginu

 

 

Og litli stúfurinn varð náttúrlega að prófa líka!

 

 

 

Snæfinnur snjókarl

 

 

 

 

 

Ástþór Örn sestur undir tréð, þar sem að þessu sinni var drukkin heit sólberjasaft

 

 

 

Hún rann ljúflega niður, enda voðalega góð

 

 

 

 

 

Engill býr til engil og fær snjóinn niður um hálsmálið...

 

 

Og englaljós í ýmsum gerðum!

 

 

 

Á sunnudaginn fórum við á Kardimommubæinn í Þjóðleikhúsinu. Arnaldur Kári var að fara í fyrsta skiptið í leikhúsið.

Ég vissi ekki alveg hvernig það myndi ganga, en amma Kata hafði ofurtrú á þessum strák! Til málamynda voru teknar

með snuddur og bækur svona ef það þyrfti að fara með hann fram en það þurfti ekki að notast við nein hjálpartæki né

fara fram því hann skemmti sér konunglega allan tímann og vildi bara meira þegar allt var búið.

 

 

 

Ástþór Örn og Anika Rut voru að sjálfsögðu afskaplega prúð, enda vant leikhúsfólk

þar á ferð! Þarna vorum við saman í leikhúsinu Amma Kata og amma Rut vinkona ömmu,

með dæturnar sínar, dóttursyni og dótturdóttur - mjög gaman að því!

 

 

 

Ástþór Örn hafði nú engann tíma í að útbúa aðventuskreytinguna sína

um helgina en í gær dundaði hann sér við að útbúa það með smá

ráðleggingum frá mér, aðallega hvernig ætti að útbúa þetta allt með

svolitlum skammti af "Káravörnum"!!!!

Í stað þess að raða í kringum kertinn því sem hann hafði valið að nota í ár

þræddi hann upp á perluband hitt og þetta skraut.

 

 

 

Búið að skreyta og kveikja á spádómakertinu. Verður gaman að sjá kertaljósunum fjölga næstu sunnudaga.

 

 

 

"Við kveikjum einu kerti á. Hans koma nálgast fer..."

 

 

 

Og hér verða nú að fá að fylgja desembermyndir með þessum nóvembermyndum, svona úr því að þetta tilheyrir

nú desemberalbúmi. Hér eru  þeir bræður að bíða eftir 1. des-kakóbollanum og nokkrum piparkökur...eða "pikarpökum"

eins og Arnaldur Kári kýs að kalla þær.

 

 

 

 

 

Ástþór Örn söng nokkur jólalög fyrir okkur og Arnaldur Kári hlustaði

dáleiddur á!