Tennur og tannhirða
Sjúkdómar í tönnum og munni
er algeng ástæða þess að komið sé með dýr til
dýralæknis. Meðhöndlun er möguleg í mörgum tilfellum en
forvarnir eru alltaf besti kosturinn.
Hvolpar og kettlingar fæðast tannlausir.
Mjólkurtennurnar koma upp þegar þeir eru 3-6 vikna
gamlir og tannskipti verða við 3-7 mánaða aldur (þetta
gerist nokkru fyrr hjá köttum en hundum). Fullorðnir
hundar hafa 42 tennur en fullorðnir kettir 30 tennur.
Sérstaklega hjá smáhundum kemur það fyrir að tannskipti
ganga ekki eðlilega fyrir sig og þeir fella ekki
mjólkurtennurnar þrátt fyrir að fullorðinstennurnar komi
upp. Þetta á einkum við um framtennur og vígtennur í
efri góm. Hafi mjólkurtennurnar ekki losnað við 7-8
mánaða aldur er nauðsynlegt að láta taka þær, annars
verða þær til vandræða.
Rannsóknir hafa sýnt að
allt að 70% fullorðinna hunda og katta þjást af einhvers
konar tannsjúkdómum. Tannskemmdir eins og þekkjast hjá
fólki er ekki algengt vandamál hjá gæludýrum en hins
vegar er tannsteinsmyndun og tannholdsbólga afar algengt
vandamál sem getur leitt til alvarlegra skemmda á
tönnum, tannholdi og jafnvel kjálkabeini sé ekkert að
gert. Tannsteinn myndast af matarleifum og bakteríum sem
safnast upp í kringum tennurnar. Það veldur ertingu á
tannholdinu sem verður rautt og bólgið. Sé tannsteinninn
ekki fjarlægður safnast hann upp undir tannholdinu sem
smám saman eyðist. Einkenni slíkrar tannholdsbólgu eru
m.a. viðvarandi andremma, blæðing úr tannholdi, lausar
tennur og léleg matarlyst. Algengara er að hundar af
litlum tegundum eigi við tannvandamál að stríða en
stórir hundar. Ástæðan er í raun plássleysi í munninum á
þeim. Fullorðnir kettir sem fá eingöngu blautfóður eru
oft með ansi mikinn tannstein.
Mikilvægt er að eigendur skoði reglulega upp í kjaftinn
á hundum og köttum og fylgist með ástandi tanna og
tannholds. Með þessu móti venst dýrið líka tannskoðun
sem er hluti af heilbrigðisskoðun hjá dýralækni. Nokkur
ráð eru til að halda tönnunum hreinum. Ýmis nagbein
(þetta á ekki við um ketti) eru gagnleg í þessu tilliti
og því lengur sem það tekur hundinn að naga það, því
betra. Þurrfóður er betra fyrir tennurnar en blautfóður
og sumar tegundir þurrfóðurs innihalda auk þess sérstök
efnasambönd sem draga úr tannsteinsmyndun. Tannburstun
er þó besta leiðin til að fyrirbyggja tannvandamál.
Auðvitað er nauðsynlegt að hundurinn eða kötturinn leyfi
eigandanum yfirleitt að eiga við tennurnar og fara ber
að öllu með gát. Til eru sérstakir tannburstar fyrir dýr
en mjúkir barnatannburstar eru góðir til að byrja með.
Ekki er þörf á að nota tannkrem. Gott er að byrja á
einni tönn og þegar hundurinn eða kötturinn er farinn að
venjast burstuninni eru fleiri tennur teknar.
Sé tannsteinn þegar farinn að safnast upp er hægt að
láta fjarlægja hann. Það er gert í deyfingu eða svæfingu
með tæki sem myndar hátíðnihljóðbylgjur sem brjóta upp
steininn. Tennur sem eru illa farnar eru fjarlægðar. Oft
er dýrið svo sett á sýklalyfjakúr í framhaldi af
tannhreinsun. Hafið í huga að illa farnar tennur og sýkt
tannhold getur valdið hundum og köttum mjög miklum
óþægindum og orsakað alvarleg heilsufarsleg vandamál.
Kíkið uppí munninn á heimilisdýrinu strax í dag (en
gætið þess þó að verða ekki bitin!).
Heimild: Hrund Hólm Dýralæknir
Dýralæknastofa Suðurnesja
www.dyri.com
|