|
Smáveirusótt er
meðal algengustu veirusjúkdóma í hundum í heiminum og
getur hún verið lífshættuleg. Veiran (hunda-parvóveira)
leggst á meltingarfærin og algengustu einkenni eru
uppköst og niðurgangur, gjarnan blóðugur og í kjölfarið
fylgir ofþornun. Hvolpar og ungir hundar eru í mestri
hættu en fullorðnir hundar fá yfirleitt vægari
sjúkdómseinkenni. Smáveirusótt greindist fyrst á Íslandi
árið 1992 og allar götur síðan hafa íslenskir hundar
verið bólusettir gegn sjúkdómnum.
Heimild: Hrund Hólm Dýralæknir
Dýralæknastofa Suðurnesja
www.dyri.com
|