|
| |
| |
|
Ofnæmi hjá hundum
Ofnæmi er algengt vandamál á meðal hunda. Einkennin eru
ýmis húðvandamál eins og kláði og hárlos sem er oft
bundið við ákveðinn stað á líkamanum eins og t.d. á
milli þófanna, í náranum eða framan á hálsinum. Þegar
dýrin svo klóra sér eykst kláðinn auk þess sem ekki er
óalgengt að sýking komi í kjölfarið. Langvinn eyrnabólga
getur verið eina einkenni ofnæmis.
Ofnæmi er algengara á meðal sumra hundategunda en
annarra. Helst má nefna eftirfarandi tegundir: West
Highland White Terrier (og fleiri Terrier-tegundir),
dalmatíuhunda, enska og írska seta, labrador, golden
retriever, þýska fjárhunda, boxer, shar pei og enska
bolabíta.
Í stuttu máli má segja að ofnæmið myndist á eftirfarandi
hátt. Ofnæmisvaldurinn (sem getur verið frjókorn, efni
eins og ull eða nælon, gúmmí eða plast, ákveðnar
tegundir fóðurs (ákveðnar kjöttegundir eða korn),
flóabit og ýmislegt fleira) hefur þau áhrif að ákveðnar
frumur í húðinni fara að framleiða efnasambönd sem valda
kláða og óþægindum.
Ofnæmi kemur yfirleitt fram á fyrstu æviárum hundsins.
Upphaflega getur ofnæmisvaldurinn verið vel skilgreindur
(t.d. ákveðin tegund fóðurs) en með tímanum getur
ofnæmið aukist, þ.e. hundurinn fær ofnæmi fyrir fleiri
þáttum auk þess sem einkennin geta versnað.
Meðhöndlun ofnæmisins felst fyrst og fremst í að
fjarlægja orsakavaldinn. Í sumum tilfellum getur verið
erfitt að finna ofnæmisvaldinn og ef búið er að útiloka
þætti eins og frjókorn og flær beinist athyglin oft að
fóðrinu. Margar tegundir hundafóðurs eru til á
markaðinum og er gæðamunurinn á þeim mjög mikill.
Þróaðar hafa verið sérstakar tegundir fóðurs sem
innihalda mjög lítið af þekktum ofnæmisvöldum (nefnt
ofnæmisfóður). Til þess að hægt sé að kanna hvort fóðrið
sem hundinum hefur verið gefið, sé ofnæmisvaldurinn,
þarf að fóðra eingöngu með nýja fóðrinu í a.m.k. þrjár
vikur. Þetta krefst mikils aga þar sem auk þess að það
getur verið erfitt að skipta um fóður má alls ekki gefa
hundinum neina aukabita.
Ofnæmispróf er hægt að láta framkvæma með einni
einfaldri blóðprufu. Kannaðir eru um 90 þættir í
umhverfinu sem algengast er að hundar hafi ofnæmi fyrir,
eins og t.d. gras- og trjátegundir, ýmsar fóðurtegundir,
flugur o.fl. Ef þörf krefur er í framhaldi af því hægt
að láta útbúa sérstakt lyf út frá niðurstöðunum sem
hundurinn er svo meðhöndlaður með. Um er að ræða
svokallaða ónæmingu. Sprauta þarf hundinn jafnt og þétt
(fyrst annan hvern dag og svo lengist millibilið, í
lokin líður mánuður á milli sprauta) á 8 mánuðum. Á
meðan meðhöndlun stendur yfir getur verið að þurfi að
meðhöndla hundinn jafnframt gegn ofnæmiseinkennum. Það
tekur því nokkurn tíma þar til árangur ónæmingarinnar
kemur fram.
Lyf til meðhöndlunar ofnæmis beinast að ónæmiskerfinu.
Fyrir utan ofangreinda ónæmismeðhöndlun má helst nefna
barkstera (bólgueyðandi stera,t.d. prednisolon) og
antihistamín en báðir þessir lyfjaflokkar hafa
kláðastillandi og ofnæmisbælandi verkun. Barksterunum
fylgja ýmsar aukaverkanir og helst má nefna aukinn
þorsta og þvaglát. Því er mikilvægt að finna réttan
skammt fyrir hvern einstakling. Oftast er byrjað með
frekar háan skammt og hann svo minnkaður smátt og smátt.
Sýklalyf eru notuð til að meðhöndla sýkingar sem komið
hafa í kjölfar ofnæmisins.
Fitusýrur (omega-3 og omega-6) hafa fengið aukna athygli
undanfarin ár sem hluti af meðhöndlun ofnæmis. Þessar
fitusýrur eru mikilvægar til eiginframleiðslu líkamans
af efnasamböndum sem stuðla að góðu ónæmiskerfi og
heilbrigðri húð.
Heimild: Hrund Hólm Dýralæknir
Dýralæknastofa Suðurnesja
www.dyri.com
|
|
|
|
|
|
| |
|
|