|
Smitandi lifrarbólga í hundum orsakast
af hunda-adenóveiru (teg. 1) og veldur mismunandi
einkennum, frá vægum veikindum upp í mjög alvarleg. Í
alvarlegustu tilfellunum getur veiran dregið hundinn til
dauða á innan við sólarhring. Helstu einkenni eru
hálsbólga, hiti, lystarleysi, niðurgangur, uppköst,
eymsli í kvið og slappleiki. Talið er að þessi sjúkdómur
hafi fyrst borist til Íslands um 1980 en aldrei hefur
verið um eiginlegan faraldur að ræða. Bólusetning gegn
lifrarbólgu hér á landi hófst árið 1996 en árið 2003 var
framleiðslu bóluefnisins hætt og síðan þá hefur
lifrarbólgan valdið töluverðum usla hér. Vonandi verður
notkun Recombitek C4 til þess að lifrarbólgutilfellum
fækkar til muna.
Heimild: Hrund Hólm Dýralæknir
Dýralæknastofa Suðurnesja www.dyri.com
|