Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Írskur setter.

Lýsing
Írskur Setter er glæsilegur í útliti. Hann er úthaldsmikill, fullur af orku, mjög hraður og stingur oft aðra hunda af á hlaupum. Írski Setter er mjög ástúðlegur, dugmikill og sjálfstæður, hann er barngóður hundur sem semur yfirleitt vel við aðra hunda sem eru á heimilinu. Þægilegur heimilishundur sem er rólyndur heima við en úthaldsmikill og hraður þegar út er komið. Írskur Setter er stundum notaður sem veiðihundur, þar sem hann bendir á bráðina, og hentar einnig ágætlega sem sækir. En í dag er hann aðalega hafður sem félagi og/eða sýningarhundur í dag, enda tilvalinn sem slíkur. Hann er yfirleitt ekki heppilegur sem varðhundur.

Uppruni
Hann var eitt sinn þekktur undir nafninu ,,Modder Rhu" eða rauði hundurinn. Írski Setter var einnig kallaður ,,Red Spaniel.” Til eru einnig önnur tegund af Írska Setter, en nefnist hann Írskur Rauður og Hvítur Setter, og eins og nafnið gefur til kynna er hann rauður og hvítur að lit. Írski Setterinn er einnig þekktur undir nafninu Rauður Setter. Fyrsta ræktunarmiðið fyrir Írska Setter var gefið út árið 1885. Einn aðal forfaðir Írska Setters er sá rauði og hvíti sem nefndur er hér fyrir ofan. Einnig er talið að Enski Setter og Gordon Setter hafi verið notaðir til þess að skapa tegundina.

Umhirða
Írskur Setter hefur fallegan meðalsíðan feld sem þarf að bursta daglega. Fylgjast þarf með eyrum.

Hreyfing
Írskur Setter er orkumikill hundur, hann þarf nóg pláss og mikla hreyfingu, en getur þó aðlagað sig að borgarlífi.

Leyfilegir litir
Djúpmahónírauður. Hvítur litur er leyfilegur á bringu, höku, tám og örmjó blesa á miðju höfði fram á trýni.

Staðreyndir

Upprunaland: Írland
Upprunatími: 1700
Fyrstu not: Veiðihundur
Í dag: Félagi, sýningarhundur, Veiðihundur
Lífsskeið: 12 - 13 ár.
Önnur nöfn: Irish Red Setter

Hæð á herðakamb
Rakkar 57 - 70 sm. Tíkur 54 - 67 sm.

Þyngd
20 - 25 kg.
Heimild: www.hvuttar.net