|
Hundafár (canine distemper) orsakast af
paramyxóveiru (skylt mislingum). Hundafár er mjög
alvarlegur sjúkdómur sem smitast hratt á meðal
óbólusettra hunda. Algengustu einkennin eru útferð úr
augum og nefi, hósti, uppköst, niðurgangur og
krampaköst. Margir þeirra sem lifa sjúkdólminn af hljóta
varanlegan skaða á sjón og taugakerfi og einnig tönnum.
Heimildir eru um að hundafár hafi geisað á Íslandi á
seinni hluta 19. aldar en síðasti faraldurinn var árið
1966. Allir innfluttir hundar verða að vera bólusettir
gegn hundafári (auk fleiri sjúkdóma) þar sem íslenski
hundastofninn er sérstaklega viðkvæmur fyrir þeim
sjúkdómi.
Heimild: Hrund Hólm Dýralæknir
Dýralæknastofa Suðurnesja www.dyri.com
|