|
Svonefndur hótelhósti er sýking í efri
öndunarfærum hunda sem orsakast af nokkrum mismunandi
veirum og bakteríum. Af veirunum hefur
hunda-parainflúensuveiran þar einna mest að segja en
einnig hunda-adenóveira (teg. 2) (Recombitek C4 veitir
vörn gegn þessum veirum). Um er að ræða bráðsmitandi
sýkingu sem berst hratt á milli hunda t.d. á
hundahótelum (þaðan dregur sjúkdómurinn nafnið).
Algengustu einkenni eru þurr hósti en lystarleysi, hiti
og depurð er oft til staðar. Flestir hundar ná sér eftir
2-4 vikur en ungir hundar og gamlir og/eða ónæmisbældir
geta fengið alvarlegri einkenni. Hótelhósti hefur verið
staðfestur á Íslandi en lítið er vitað um útbreiðslu
sjúkdómsins hér.
Heimild: Hrund Hólm Dýralæknir
Dýralæknastofa Suðurnesja www.dyri.com
|