|
Hjartasjúkdómar í hundum og köttum |
Hjartasjúkdómar eru algeng ástæða þess að gæludýr deyji
eða séu aflífuð fyrir aldur fram. Með lyfjameðhömdlun er
þó hægt að lengja líf og bæta lífsgæði hjartveikra dýra.
Minnkað þol og öndunarerfiðleikar geta verið vísbending
um að hjartað starfi ekki eðlilega. Hér verður fjallað
lítillega um hjartað og helstu hjartasjúkdóma í hundum
og köttum.
Hjartað samanstendur af fjórum hólfum, hægri gátt og
slegli og vinstri gátt og slegli. Súrefnissnautt blóð
kemur frá öllum hlutum líkamans til hægri gáttar og
niður í hægra hvolf. Þaðan er blóðinu dælt í gegnum
lungnaslaæðina til lungna þar sem það losar sig við
koltvísýring og tekur til sín súrefni. Súrefnisríkt blóð
kemur svo frá lungunum til vinstri gáttar og slegils og
er þaðan dælt út í ósæðina og færir öllum vefjum og
líffærum súrefni.

Hjartasjúkdómar í gæludýrum eru annað hvort
meðfæddir eða áunnir. Sem dæmi
um meðfædda hjartasjúkdóma má nefna opna fósturæð, þ.e.
op á milli ósæðar og lungnaslagæðar (algengasti meðfæddi
hjartagallinn í hundum) og op á milli slegla (algengasti
meðfæddi hjartagallinn í köttum). Það veltur á því
hversu alvarlegur gallinn er hvort hann uppgötvast við
almenna skoðun eða hvort og hvenær sjúkdómseinkenni koma
fram. Dýr sem fæðast með alvarlega hjartagalla þrífast
illa, þyngjast hægt og hafa lítið þol. Úrræði eru fá en
í sumum tilfellum er hægt að meðhöndla einkennin með
lyfjum. Hjartaaðgerðir á dýrum hafa hingað til ekki
verið framkvæmdar á Íslandi.
Áunnir hjartasjúkdómar eru mun algengari en meðfæddir.
Tíðnin er afar misjöfn eftir hunda- og kattategundum.
Sem dæmi um áunna hjartasjúkdóma má nefna hrörnun í
hjartalokum, ofþykknun á hjartavöðva og hjartavöðvaslen.
Hjartalokuhrörnun er einn algengasti
áunni hjartasjúkdómurinn í hundum og finnst hann
aðallega í smáhundum og sér í lagi hjá Cavalier King
Charles Spaniel. Sjúkdómurinn greinist oftar í rökkum en
tíkum. Orsökin er óþekkt en sýnt hefur verið fram á
arfgengi. Um er að ræða þykknun og afmyndun á
hjartalokunum á milli vinstri gáttar og slegils sem
veldur því að hluti blóðsins rennur til baka úr slegli í
gátt. Sjúkdómurinn er langvinnur og einkenni koma
yfirleitt ekki fram fyrr en eftir 6-7 ára aldur þó svo
að aukahljóð á hjarta geti greinst 2-3 árum fyrr.
Einkennin eru m.a. minnkað þol, hósti (næturhósti),
öndunarerfiðleikar vegna lungnabjúgs og jafnvel yfirlið.
Ofþykknun á hjartavöðva (hypertrophic
cardiomyopathy) er algengasti hjartasjúkdómurinn hjá
köttum. Um er að ræða arfgengan sjúkdóm sem finnst bæði
í húsköttum og hreinræktuðum köttum eins og persum og
Maine Coon. Einkenni eru afar breytileg en
öndunarörðugleikar koma yfirleitt fram. Þverrandi þol er
erfitt að greina hjá köttum. Blóðtappar geta myndast og
valdið lömun, sérstaklega á afturfótum.
Hjartavöðvaslen (dilated
cardiomyopathy) sést helst hjá stórum hundategundum eins
og stóra Dana, írskum úlfhundi, doberman og boxer
(einnig hjá cocker spaniel). Í þessum tilfellum þynnist
hjartavöðvinn og nær ekki að dragast saman að fullu og
getur því ekki pumpað blóðinu um líkamann sem skyldi.
Einkenni koma oftast fram þegar hundurinn er miðaldra en
þau eru m.a. öndunarerfiðleikar, hósti, minnkað þol og
þyngdartap. Þessi sjúkdómur getur einnig valdið
skyndidauða.
Meðhöndlun á hjartasjúkdómum felst í flestum tilfellum í
að minnka lungnabjúg og síðan að auka starfsgetu
hjartans. Óraunhæft er að reikna með bata en einkenni
eru meðhöndluð og lífsgæði dýrsins þar með aukin.
Mikilvægast er þó að taka hjartasjúkdóma með í
reikninginn í ræktunarstarfi og rækta ekki undan dýrum
sem vitað er að hafi hjartasjúkdóm.
Heimild: Hrund Hólm Dýralæknir
Dýralæknastofa Suðurnesja
www.dyri.com
|