|
| |
| |
|
Fóðurofnæmi
Tengsli milli næringar og húðofnæma eru rakin beint í
innihald fóðurs og auðvelt að greina hverskonar ofnæmi á
sér stað. Skortur á næringu (sink eða A vítamín sem
dæmi) eru afar fágæt dæmi. Stundum á sér stað
annarsstigs sink skortur ef að hvolpurinn fékk þurrfóður
ríkt af kalsíum og phytin sýru með lítið af sinki.
Þegar grunur leikur á um fóðurofnæmi, er auðvelda leiðin
til að athuga greininguna með að skipta yfir í
ofnæmisprófað fóður.
Þó eru skiptar skoðanir á þessu milli gæludýraeigenda.
Sem dæmi þá er talið að það sé nauðsynlegt að sneiða hjá
öllum viðbættum efnum. Þar sem að flest viðbætt efni
hafa lága sameindaþyngd geta þau virkað sem hjálparvaki,
en aldrei sem ofnæmi.
Eins og margir sem að rannsaka þessi mál skýra frá, þá
eru flest dæmi um fóðurofnæmi tengd kjöt eða
kornpróteinum. Auðveldasta ofnæmisfóðrið er fóður sem að
hundurinn hefur aldrei fengið áður, eins og til dæmis
héra eða hrossakjöt. Eftir þrjár vikur ætti að sjást
greinilegur munur. Á meðan þessu stendur má alls ekki
gefa neinn annann mat eða aukabita. Þegar það er búið að
taka þessar 3 vikur að fullu í breyttu mataræði, ætti að
reyna að finna fóður sem að veldur ekki
ofnæmisviðbrögðum.
Heimild: www.rottweiler.is |
|
|
|
|
|
| |
|
|