|
Flugeldaótti
Aldrei er góð vísa of oft kveðin og þar sem líður
að áramótunum með tilheyrandi flugeldum er ástæða til að
rifja upp helstu leiðbeiningar til dýraeigenda vegna
ótta við flugelda. Ótti við hávær hljóð eins og flugelda
háir fjölda hunda og katta. Eðlilegt er að dýrin verði
vör um sig í miklum hávaða en sum verða ofsahrædd, titra
og skjálfa, verða áhugalaus um mat og leikföng og missa
jafnvel þvag. Flest reyna að leita skjóls undir
húsgögnum eða inni í skápum en dæmi eru um að hundar
hafi nagað sig í gegnum veggi af ótta við hávaða.
Almennar ráðleggingar
Ýmislegt er til ráða til að draga úr óttanum.
Dýrunum skal haldið innandyra og best er að útbúa
aðstöðu í einhverju herbergi þar sem þau þekkja til. Þar
skal draga fyrir glugga og hafa ljósið kveikt og
einhverja tónlist í gangi þar sem það getur dregið úr
hávaðanum sem berst inn. Þetta á jafnt við um hunda og
ketti en kettirnir eru yfirleitt fljótir að finna sér
felustað sem hentar þeim. Ráðlegt er að tala rólega við
dýrin en ekki vorkenna þeim um of. Dýr sem verða mjög
hrædd má ekki skilja eftir einsömul. Hvolpum og
kettlingum sem eru að upplifa sín fyrstu áramót þarf
einnig að sýna sérstaka aðgát. Hræðsla við hávaða eykst
oft eftir því sem dýrin eldast.
Notkun róandi lyfja
Það hefur færst í vöxt að gefa hundum róandi lyf
á áramótunum og þrettándanum. Þó það sé góð lausn fyrir
einhverja hunda er það ekki æskilegt í öllum tilfellum
og alls ekki á fyrstu áramótunum sem dýrin upplifa.
Verkun róandi lyfja er mismunandi eftir einstaklingum og
fer m.a. eftir aldri, líkamlegu ástandi og skapgerð.
Ekki hafa öll róandi lyf slævandi áhrif á skynfæri
þannig að þrátt fyrir að hundurinn virðist slaka á getur
hann upplifað óttann en ekki tjáð hann vegna lyfjanna.
Aukaverkanir geta fylgt notkun róandi lyfja og aldrei má
skilja dýr eftir ein hafi þeim verið gefin slík lyf.
Ávallt skal ráðfæra sig við dýralækni áður en dýrum er
gefið róandi lyf.
Lyktarhormón
Lyktarhormón eða svokölluð ferómón (Feliway /
D.A.P.) hafa verið notuð með góðum árangri til að draga
úr ótta af ýmsum orsökum hjá hundum og köttum. Þessi
efni eru sambærileg annars vegar þeim lyktarefnum sem
mjólkandi tík myndar til að sefa hvolpa sína og hins
vegar lyktarefnum sem kettir skilja eftir sig t.d. á
eigendum sínum þegar þeir nudda andlitinu upp við þá sem
er tákn um vellíðan. Lyktarhormónin eru á vökvaformi í
íláti sem er stungið í samband í því herbergi sem
hundurinn eða kötturinn hefur aðstöðu. Hvert hylki dugar
í um 4 vikur en nokkra daga tekur að metta herbergið og
því þarf að hefja notkun á lyktarhormónunum með einnar
til tveggja vikna fyrirvara.
Við flugeldaótta er semsagt ýmislegt til ráða og
gott er að huga að ráðstöfunum með nokkrum fyrirvara.
Dagarnir skömmu fyrir áramót geta gefið vísbendingar um
hvernig dýrin munu bregðast við þar sem sumir geta ekki
beðið eftir gamlársdegi með að byrja að sprengja. Það
allra mikilvægasta er þó að sjá til þess að dýrin séu í
öruggu umhverfi og njóti stuðnings eigenda sinna.
Heimild:Dýralæknastofa Suðurnesja
www.dyri.com
|