|
| |
| |
|
 |
Chihuahua
Lýsing
Chihuahua er minnsta hundategund heims og vegur aðeins í
kringum 2 kg. Þó hann sé lítill í stærð heldur hann
sjálfur að hann sé heimsins stærsti hundur. Sagt er að
hann sé stór hundur sem hafi lent í litlum búk. Tryggur,
húsbóndahollur, mjög fjörugur og greindur. Chihuahua á
það til að umgangast bara hunda af sömu tegund, þess
vegna þarf að umhverfisvenja þá vel frá hvolpsaldri.
Þeir eru viðbragðsskjótir, djarfir og hugaðir litlir
hundar. Komið hefur fyrir að fólk hafi komist upp með
það að Chihuahua hundurinn þeirra fær inngöngu með þeim
á hótel og aðra álíka staði, svo lítill er hann.
Chihuahua verður mjög háður eiganda sínum og á verði
gagnvart ókunnugum. Hárafar er mismunandi, ýmist snöggt
eða loðið.
Uppruni
Uppruni Chihuahua er enn dulinn. Sérfræðingar geta sér
til um að litlir hundar, líkir og Chihuahua hafi komið
til Ameríku með spænska hernum frá Hernando Cortes árið
1519. Önnur kenning er sú að kínverskir sjóferðalangar
hafi tekið með sér litla smáhunda til Ameríku fyrir komu
þeirra til Evrópu. Einnig er talið að tegundin sé
uppruninn í Mexíkó, sem er talin líklegasta kenningin.
Tegundin var fyrst flutt til Evrópu (Bretlands) árið
1850. Chihuahua er nefndur eftir fylki í Norður Mexíkó,
þaðan var hann fluttur til Evrópu og síðan víða um heim.
Chihuahua tók þátt í helgisiðum í Mexíkó fyrir mörgum
árum, þeir voru sagðir vera heilagir, þeim var stundum
fórnað fyrir guðina.
Umhirða
Snögghærður Chihuahua þarf litla sem enga feldhirðu, en
bursta þarf síðhærða afbrigði reglulega. Böðun þegar
nauðsinlegt þykir. Klær er klipptar eftir þörfum og
fylgjast þarf með augum og tönnum (vegna
tannsteinsmyndunar).
Hreyfing
Chihuahua verðu heilbrigðari og ánægðari ef hann fær
reglulega hreyfingu. Hann ætti að fá daglega meðallanga
göngutúra. Chihuahua er viðkvæmur gagnvart kulda.
Leyfilegir litir
Allir litir leyfilegir. Vinsælustu og algengustu
litirnir eru ljósgulbrúnn eða brúnn, súkkuaðilitaður,
ljósgulbröndóttur eða brúnn og hvítur, kremlitaður,
ljósgulur og silfur, silfurgrár, svartur og brúnn og
svartur.
Staðreyndir
Upprunaland: Mexíkó
Upprunatími: 1800?
Fyrstu not: Félagi
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 13 - 14 ár
Önnur nöfn: Mexíkóskur Dverghundur
Hæð á herðakamb
Ekki skilgreind.
Þyngd
0.9 - 3 kg. Hundar yfir 3 kg. óæskilegir.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|