Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 

Tilgangur bólusetninga er að vernda þann einstakling sem bólusettur er fyrir ákveðnum smitsjúkdómum, í flestum tilfellum veirusýkingum.

Þegar bólusett er í fyrsta skipti er talað um ,,grunnbólusetningu"  gegn ákveðnum smitsjúkdómi(um) og er þá nánast í öllum tilfellum um tvær bólusetningar að ræða sem framkvæmdar eru með 4-6 vikna millibili. Þetta er gert til þess að líkami þess sem bóluefnið fær myndi nægi í nógu langan tíma sem vörn gegn tilætluðum smitsjúkdómum.

Ef móðir hvolps eða kettlings hefur verið bólusett reglulega samkvæmt tilskildum tímamörkum þá fá afkvæmi hennar mótefni með móðurmjólkinni sem vernda þau fyrstu 8-12 vikurnar. Eftir það þarf að grunnbólusetja afkvæmin og vekja þannig mótefniskerfi þeirra sem einstaklinga til myndunar mótefna fyrir sjúkdómnum.

Hér á landi eru hundar bólusettir gegn svokallaðri ,,parvó-veiru eða smáveirusótt" og ,,smitandi lifrarbólgu" skammstafað HCC (hepatitis contagiosa canis).

  • Ormahreinsa tíkur eftir got og hvolpa þeirra við þriggja vikna aldurinn.

  • Ormahreinsa hvolpa fyrir grunnbólusetningu gegn smáveirusótt og lifrarbólgu (6-8 vikna)

  • Fyrsta bólusetning 8 vikna

  • Önnur bólusetning 12 vikna og ormahreinsun hjá dýralækni (lagaskylda)

  • Bólusetning árlega og ormahreinsanir.