Alaska Malamute.
Lýsing
Þó að Alaskan Malamute sé líkur úlfi í útliti er hann
ástúðlegur. Hann er kröftugur, sterkur, vingjarnlegur,
trúr og tryggur félagi, þó hænist hann ekki bara að
einni manneskju. Fjörugur, gáskafullur og glæsilegur.
Þegar Jack London nefndi í för sinni til frosna
norðursins, duglega Husky sleðahunda, hefur hann líklega
verið að tala um Alaskan Malamute. Hann er vinsæll í
Kanada og Ameríku sem gæludýr. Alaskan Malamute er
tryggur, snjall og blíður, ágætur með börnum. Þeir eru
mjög vinalegir við alla og því ekki heppilegir
varðhundar. Alaskan Malamute getur lifað góðu lífi
utandyra svo framarlega sem hann fær næga athygli og
félagsskap, hann nýtur þess líka að lifa innandyra á
heimilum manna. Þeir þola kalda veðráttu mjög vel.
Ákveðin þjálfun og góð umhverfisþjálfun er nauðsinleg.
Uppruni
Hann er nefndur eftir Malamut Inúítum sem búa á
heimskautsströnd Vestur-Alaska. Þessi tegund var notuð
sem sleðahundur í heimalandi sínu löngu áður en
Evrópubúar komu til Ameríku, þeir geta dregið mjög
þungar birgðir.
Umhirða
Alaskan Malamute hefur þéttan feld sem þarf að vera
burstaður u.þ.b. tvisvar í viku. Hann fer úr hárum
(missir undirfeldinn) tvisvar á ári, og þá er mikið um
hárlos.
Hreyfing
Malamute þarf nokkuð mikla, daglega hreyfingu. En passa
skal að ofgera þá ekki í heitu veðri.
Leyfilegir litir
Frá ljósgráum í litbrigði af svörtun, eða frá
gulllituðum í litbrigði af rauðum út í lifurlitað.
Alltaf hvítur á neðri hluta líkamans, hluta af
leggjunum, á fótum og með hvíta grímu eða hettu.Eini
leyfilegi heilliturinn er hvítur.
Staðreyndir
Upprunaland: Ameríka
Upprunatíma: Fornöld
Fyrstu not: Sleða- og vinnuhundur.
Í dag: Félagi, sleðahundur
Lífsskeið: 12 ár
Hæð á herðakamb
Rakkar 65 sm. Tíkur 58 sm.
Þyngd
Rakkar 38 kg. Tíkur 34 kg.
Heimild: www.hvuttar.net |