|
| |
| |
|
 |
Papillon.
Lýsing
Papillon (sem þýðir fiðrildi á frönsku) fékk nafnið
vegna eyrnanna sem minna helst á fiðrildavængi, og þegar
hann hleypur er líkt og hann blaki vængunum. Papillon er
lítill og fíngerður hundur, hann er alltaf einstaklega
fjörugur og vinalegur og bindur sig traustum böndum við
eiganda sinn og verður stundum eigingjarn og þykist eiga
hann. Hann getur laðað sig að lífi í borg sem byggð.
Papillon er barngóður hundur sem auðvelt er að þjálfa,
hann hefur náð góðum árangri m.a. í hundafimi. Hann er
líflegur, ástúðlegur, ákafur, ávalt árvakur og nokkuð
fjarlægur ókunnugum. Í nokkrum löndum er Papillon og
Phaléne skilgreindir sem sama tegundin. Sú tegund er þá
kölluð ,,Contiental Toy Spaniel.” Ræktunarmið þeirra er
nákvæmlega það sama, nema þegar kemur að lýsingu á
eyrnastöðu.
Uppruni
Sögur segja að Dwarf Spaniel sem var uppi á 16 öld, sé
forfaðir Papillon. Af feldinum og byggingu að dæma er þó
líklegt að hann sé skyldur Evrópskum Spits hundum.
Phaléne er eldri en Papillon sem kom fram á 19 öld og
var líklega blandað við Þýska dvergspits, til að fá
uppréttu eyrun. Ræktunarmiðið var viðurkennt árið 1937.
Umhirða
Dagleg burstun og kembing, sérstaklega eyru, skott og
buxur. Böðun reglulega, klippa þarf klær eftir þörfum
Hreyfing
Papillon þar meðalmikla hreyfingu, og hefur gaman af
útivist.
Leyfilegir litir
Allir litir leyfilegir á hvítum grunni. Hvítur litur á
líkama og fótum verður að vera ráðandi. Nokkuð breið,
hvít blesa er mikils metinn, en ríkjandi hvítur litur á
höfði er galli. Varir, augnaumgjörð, og nef verður að
vera svart.
Staðreyndir
Upprunaland: Frakkland - Belgía
Upprunatími: 1600
Fyrstu not: Félagi
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 13-15 ár
Önnur nöfn: Continental Toy Spaniel, Fiðrildahundur
Hæð á herðakamb
Hámark 28 sm.
Þyngd
Til eru tvö þyngdarmörk; 1.5 - 2.5 kg. Og 2.5 - 4.5 kg.
Þyngd ætti að vera í samræmi við stærð.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|