Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Labrador Retriever.

Lýsing
Þessi konungur Retriever hundanna er ákaflega virkur, kvikur, öruggur og traustur. Stundum kallaður ,,Bendir sækjanna," Hann hefur ótrúlega gott lyktarskyn og er frábært sundhundur. Hann getur sótt alla tegundir bráða á landi sem og vatni. Með gríðarmikið sjónmynni, getur hann munað lendingarstaði nokkurra fallina fugla. Traustur að rekja slóð, hann er góður sporhundur. Mjög jafnlyndur og aldrei árásargjarn, hann hefur ánægjulegan persónuleika sem gerir hann að yndislegum félaga. Hæfileikar hans hafa ekki einungis verið nýttir í veiði heldur einnig í aðra vinnu s.s. sem blindrahundur, fíkniefnaleitarhundur, leitarhundur, hjálparhundur fyrir fatlaða og sem afbragðs heimilishundur. Hann er einstaklega barngóður, elskulegur og blíður hundur. Labrador er ein vinsælasta hundategundin í heiminum í dag.

Uppruni
Innfæddur í Kanada, Labrador Retriever er talinn vera komin af Saint Jones hundi, sem byggði eyjuna Nýfundnaland á átjándu öld. Tegundin var endanlega sköpuð snemma á 20. öld á Englandi, þar sem hann var innfluttur eftir að hafa verið blandaður við Enska Pointer, aðalega. Þessi vinsælasti Retriever á óvenju jafnlynda persónuleika sínum að þakka, sem skýrir að hann sé fyrst og fremst hafður sem félagi.

Umhirða
Burstun við og við, auk kembingu þegar hann er að fara úr hárum. Fyrir sýningar er gott að strjúka yfir feldinn með nautaskinshanska til að fá aukinn gljáa. Varist ofböðun því þá fjarlægið þið náttúrulegu olíuna úr feldinum.

Hreyfing
Labrador Retriever þarf mikla daglega hreyfingu s.s. að sækja bolta og prik, hlaupa með hjóli eigandans eða röska göngutúra. Hann nýtur þessa að fá að synda. Honum líkar ekki við að vera skilinn eftir einn.

Leyfilegir litir
Einlitur svartur, gulur eða brúnn (lifur-súkkulaðibrúnn). Gulur nær frá föl kremlitum til rauðleits-brúns (refa rauður). Lítill hvítur blettur á bringu er leyfður.