|
| |
| |
|
 |
Gordon
Setter.
Lýsing
Gordon Setter er greindur, aðlagandi, og viljugur. Hann
er góður fjölskylduhundur og verður mjög tengdur eiganda
sínum. Hann er barngóður og þolinmóður en ólundalegur
við ókunnuga og því ágætis varðhundur. Hann getur orðið
afbrigðissamur við önnur dýr en er góður með öðrum
hundum. Gordon Setter þarf ákveðna en milda og þolinmóða
þjálfun. Hann hefur frábært lyktarskin og er þyngri en
Enski Setter. Gordon Setter er rólegur, viðráðanlegur og
ástúðlegur og er afbragðs félagi.
Uppruni
Svartir og Gulbrúnir hundar voru uppi í Bretlandi í
kringum 1600. Hertoginn af Richmond og Gordon, sem var
búsettur í Gordon kastalanum í Banffshire ræktaði fram
núverandi útlit þessara hunda. Gordon Setter var
upprunalega ræktaður til að fá út góðan veiðihund
(standandi fuglahund). Sumir telja að Írski og Enski
Setter, Collie og Blóðhundur hafi verið notaðir til að
skapa Gordon Setter.
Umhirða
Hann hefur fallegan meðalsíðan feld sem þarf að bursta
daglega. Fylgjast þarf með eyrum.
Hreyfing
Gordon setter þarf nóg pláss og mikla hreyfingu. Hann
getur þó aðlagað sig ágætlega að borgarlífi.
Leyfilegir litir
Glansandi svartur grunnur, með gulbrúnum flekkjum yfir
augum, sitt hvoru megin á trýni, tvo stóra flekki á
bringu. Flekki á innanverðum afturfótum, á framfótum, í
kringum endaþarm. Lítill, hvítur blettur á bringu
leyfilegur.
Hæð á herðakamb
Rakkar u.þ.b. 66 sm. Tíkur u.þ.b. 62 sm.
Þyngd
Rakkar u.þ.b. 30 kg. Tíkur u.þ.b. 25 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|