Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Golden Retriever.

Lýsing
Harðger, kröftugur, þróttmikill og virkur, Golden Retriever hefur frábært lyktarskyn og vinnur bæði í vatni og á landi. Hann er seigur að rekja slóð, þó að hann sé minna skipulagður og Labrador. Hann er frábær að sækja vatnafugl og hefur ótrúlegt mynni. Hann geltir nánast aldrei og er ekki varðhundur. Mjög blíður, greindur, rólegur og jafnlyndur, hann er yndislegur félagi. Golden hefur einnig verið notaður sem blindrahundur og hjálparhundur fyrir fatlaða. Hann er einstaklega barngóður og hentar vel með öðrum hundum.

Uppruni
Golden Retriever er líklega komin af sömu tegundum og Labrador Retriever og var bætur með mismunandi blöndum (Gulur Flat Coated Retriever frá Nýfundnalandi með Scottish Water Spaniel og öðrum tegundum.) Tegundin varð stöðug í Englandi á 19. öld. Sumir trúa að Golden var til með því að blanda Bloodhound við gula hunda frá Caucasus fjöllum - Russian Yellow Retriever - notaður í Skotlandi sem sækir. Golden var viðurkenndur af Breska ræktunarfélaginu árið 1913. Hann er mjög vinsæll sem gæludýr í Bandaríkjunum

Umhirða
Burstun 2 í viku, auk kembingu þegar hann er að fara úr hárum.

Hreyfing
Golden er ekki hentugur til íbúðarlífs því hann þarf pláss og næga hreyfingu.s.s. að sækja bolta og prik, hlaupa með hjóli eigandans eða röska göngutúra. Honum finnst einnig mjög gaman að synda. Hann hefur andstyggð á því að vera skilinn eftir einn.

Leyfilegir litir
Öll litbrigði af giltum eða krem. Ætti ekki að vera rauður eða mahóní. Dreifð hvít hár, aðeins leyfð á bringunni.

Hæð á herðakamb
Rakkar 56 - 61 sm. Tíkur 51 - 56 sm.

Þyngd
Rakkar 26 - 31 kg. Tíkur 25 - 27 kg.
Heimild: www.hvuttar.net