Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Afganhound.

Lýsing
Franski Bulldog er skemmtilegur félagi, blíður, virkur og hugaður, hann tengist sterkum böndum við eiganda sinn. Þessi tegund þarfnast félagsskapar og athygli og getur ekki þrifist án þess. Franski Bolabítur er ekkert sérlega hrifinn af öðrum dýrum en getur lifað í sátt með þeim ef þau eru alin upp saman. Hann getur verið nokkuð árásagjarn gagnvart öðrum hundum. Barngóður hundur, viljugur og góðlyndur. Hann þolir illa heita veðráttu en, þolir borgarlíf vel. Hann er sterkbyggður, harðger, innilega ástúðlegur og greindur, tilvalinn félagi.

Uppruni
Talið er að Franski Bulldog sé komin af Tíbetska eða Asian Mastiff. Sem síðan var blandað við Terrier hunda, til að minnka tegundina. Seinna meir var líklega blandað Pug og öðrum tegundum við, til að fá núverandi útlit. Franski Bulldog var notaður sem rottuveiðari, einnig sem varðhundar í úthverfum Parísar. Ræktunarmið tegundarinnar var skrifað í kringum 1989.

Umhirða
Regluleg burstun. Böðun á tveggja mánaða fresti. Hreinsa þarf augu og vel inn í fellingar.

Hreyfing
Vegna þess að trýni hans er svo stutt, ætti ekki að hreyfa hann mikið í heitu veðri, né ofgera vegna öndunarerfiðleika. Franski Bulldog hefur óbeit á því að vera skilinn eftir einn.

Leyfilegir litir
Bröndóttur, flekkóttur eða ljósgulbrúnn.
Bröndóttur: Blanda af svörtum og öðrum lituðum hárum. Má rúma hvítt með því skilyrði að bröndóttur sem ríkjandi.
flekkóttur: Hvítur ríkjandi yfir bröndóttum. Hvíti liturinn á að vera hreinn með skýrum bröndóttum blettum og engir stórir samfeldir eða svartir flekkir.
Ljósgulbrúnn: Má hafa bröndótt hár, en verður að hafa svarta augnumgjörð.
Gulbrúnn, músargrár og gráir/blárir litir mjög óæskilegir.

Staðreyndir

Upprunaland: Frakkland
Upprunatími: 1800
Fyrstu not: Bolabeita
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 10-11 ár
Önnur nöfn: Bouledogue Francais

Hæð á herðakamb
25 - 35 sm.

Þyngd
8 - 14 kg.
Heimild: www.hvuttar.net