|
| |
| |
|
 |
Fox
Terrier.
Lýsing
Strýhærður Fox Terrier, sást seinna í sýningarhringnum,
eða 20 árum seinna en snögghærður Fox Terrier. Hann er
hugaður, kátur, orkumikill og fjörugur. Fox Terrier er
oft árásagjarn gagnvart öðrum hundum, og þar með á hann
erfitt, með að búa með öðrum dýrum. hann er skemmtilegur
fjölskylduhundur sem þarf næga athygli. Hann þolir vel
bæði heita og kalda veðráttu. Fox Terrier er ástúðlegur
með eiganda sínum og blíður með börnum. Hann er góður
varðhundur, geltir ef eitthver ókunnugur nálgast húsið.
Hann er ekki hentugur til mikillar þjálfunar.
Uppruni
Uppruninn í Bretlandi. Talið er að Wire-haired Terrier,
sem er nú útdauður, sé forfaðir Stríðhærður Strýhærður
Terrier. Eins og áður er getið er einnig til Snögghærður
Fox Terrier og eru þeir skildir, en eru sýndir hvor í
sínu lagi.
Umhirða
Til að feldurinn líti sem best út þarf að fara með þá
til fagsnyrtis nokkrum sinnum á ári. Bursta þarf þá 2-3
í viku. Wire Fox Terrier fer lítið sem ekkert úr hárum.
Hreyfing
Strýhærður Fox Terrier þarf töluverða, daglega
hreyfingu. Nær nauðsinlegt er að hafa Fox Terrier í
taumi í þéttbýli, leið og þeir sjá örlitla hreyfingu
stökkva þeir af stað og taka ekki eftir umferðinni. Þeir
þurfa þó að geta hlaupið frjálsir á öruggu svæði.
Leyfilegir litir
Hvítur er ríkjandi liturinn; Einlitur hvítur, hvítir með
rauðbrúnu, Svartir, eða svartir og rauðbrúnir blettir.
Bröndóttir, bláir, gráir, rauðir eða lifurlitaðir
blettir, ekki leyfilegir.
Hæð á herðakamb
Rakkar 39.3 sm. eða minna. Tíkur aðeins minni en rakkar.
Þyngd
Rakkar u.þ.b. 8 kg. Tíkur u.þ.b. 7 kg.
|
|
|
|
|
|
| |
|
|