|
| |
| |
|
 |
Flat
coated retriever.
Lýsing
Mjög hraustur, harðger, líflegur, skjótur og ötull,
Flat-Coated Retriever gæti verið kallaður "formúla 1" af
Retriver hundunum. Hann hefur óvenju mikinn drifkraft og
mjög skarpt lyktarskyn og getur synt eins og otur.
Afsíðis frá veiðum á ökrum og í skóglendi, sérhæfir hann
sig í að rekja slóðir og sækja í vatn. Greindur,
ástúðlegur, kátur, blíður og góðlyndur, Flat-Coated
Retriever er góður félagi.
Uppruni
Enskur að uppruna, Flat-coated Retriever var til snemma
á 19. öld sem Wavy-coated Retriever. Irish Setter,
Newfoundland og Enski Pointer eru taldir hafa verið
notaðir til að skapa tegundina; Ræktendur bættu einnig
við Labrador blóði. Flat-coated Retriever var fyrst
sýndur árið 1860. Hann var viðurkenndur af FCI árið
1935.
Umhirða
Burstun tvisvar í viku, fylgjast þarf með eyrunum.
Hreyfing
Hann þarf pláss og hreyfingu.s.s. að sækja bolta og
prik, hlaupa með hjóli eigandans eða röska göngutúra.
Honum finnst einnig mjög gaman að synda.
Leyfilegir litir
Einlitur svartur eða brúnn (lifur).
Hæð á herðakamb
Rakkar 58 - 61 sm. Tíkur 56 - 59 sm.
Þyngd
Rakkar 27 - 36 kg. Tíkur 25 - 32 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|