|
| |
| |
|
 |
Enskur
Springar Spaniel.
Lýsing
Þessi hrausti, harðgeri, þróttmikli, ötulli, og skjóti
hundur er með næmt lyktarskyn, og hann óttast hvorki
kjarr né votlendi. Springer Spaniel er sterkari og
dugmeiri en Enski Cocker Spaniel. Hann rekur slóð virkt
og þolinmótt. Fljótlegur og þróttmikill á veiðum. Enskur
Springer Spaniel er góður á kanínu, fashana, skógarsnípu
og vatnafugls veiðum. Hann er einnig ótrúlegur sækir,
sérstaklega í vatni. Dálítið hamslaus og skapstór. Hann
getur verið gott gæludýr en hann er ekki kjölturakki!
Vingjarnlegur, hlýðinn og glaðlegur að eðlisfari.
Uppruni
Enskur Springer Spaniel er einn af elstu veiðihundunum.
Forfaðir hans er talin vera Spaniel Mið aldarinnar, sem
og Norfolk Spaniel. Breskir ræktendur gerðu fjölmargar
blandanir, sérstaklega með gamla Water Spaniel. Með
höfuð svipað og French Spaniel, Springer Spaniel er
faðir allra Spaniel hunda, fyrir utan Clumber Spaniel.
Tegundin var viðurkennd opinberlega árið 1902 og varð
vinsælasti veiðihundurinn á bresku eyjunum.
Umhirða
Burstun tvisvar í viku, sérstaklega hárin á eyrum, makka
og aftan á fótum. Reglulega þarf að fylgjast með eyrum.
aftan á fótum. Klær eru klipptar eftir þörfum. Fjarlægja
þarf hárin á milli eyrna og raka þarf þau undir eyrum.
Hreyfing
Springer Spaniel þarf pláss og mikla hreyfingu. s.s. að
sækja bolta og prik, hlaupa með hjóli eigandans eða
röska göngutúra.
Leyfilegir litir
Lifur og hvítur, svartur og hvítur, eða ein af þessum
samsetningum með gulbrúnum blettum.
Hæð á herðakamb
U.þ.b. 51 sm.
Þyngd
U.þ.b. 22.5 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|