Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Enskur Pointer.

Lýsing
Þetta er harðger, virkur, skjótur og fimur hundur með mikið þol hefur tvo aðal eiginleika, Hraða og óviðjafnanlegt lyktaskyn. Enski bendirinn skarar fram úr á við veiðar á flötu, opnu landsvæði. Veiði hans er kröftug, gráðugur, áköf, stöðug, og víðtæk. Bending hans á bráð er tilkomumikil, öruggur og stöðugur. Hann sýnist næstum eins og stytta, stendur frosinn mð líkamann stjarfann, vöðvana spennta, höfuðið reist og skottið stíft og beint í sömu línu og bakið. Enski Bendirinn er reyndasti bendirinn en er ekki heppilegur sækir. Hann ber af við veiðar á skógarsnípu, kornhænu, fasana, og akurhænu. L éttlyndur og góðlyndur, Enski Bendirinn er ástúðlegur félagi. Hann getur verið ágætis varðhundur. Hann er viðkvæmur fyrir kulda og raka.

Uppruni
Sumir halda því fram að Gamli Enski Bendirinn eigi upptök sín í Portúgal. Hann var skjótur, óþreytandi bendir sem veiddi með nefið borið hátt. Það er ráðgáta hvenar þessi hundur barst til Englands. Á 19 öld blönduðu Breskir ræktendur snögghærðum bendum frá Portúgal við tegundina með ýmsum öðrum tegundum til að fá þann Enska Bendir eins og hann er í dag. Þeir notuðu líklegast Foxhound, Bloodhound, og Greyhound. Á 19 öl fékk nýja tegundin greinilega bæði Franskt og Ítalst blóð. Fyrsti tegundaklúbburinn var stofnaður 1891.

Umhirða
Vikluleg burstun. Fylgjast þarf með fótunum sérstaklega þegar hann er búin að hreyfa sig mikið. Eftir að hundurinn er búin í baði, vera úti í rigningu eða á veiðum passið þá upp á að þurrka hann strax á eftir svo honum verði ekki of kalt. Fylgjast þarf með eyrum.

Hreyfing
Enskur Pointer hefur gaman af allri hreyfingu og ætti að fá mikla daglega hreyfingu, einnig ætti hann reglulega að hlaupa laus.

Leyfilegir litir
Venjulegir litir eru sítrónugulur og hvítur, appelsínugulur og hvítur, lifur (brúnn) og hvítur, og svartur og hvítur. Heilir litir og þrílitir eru einnig leyfðir.

Hæð á herðakamb
Rakkar 63 - 69 sm. Tíkur 61 - 66 sm.

Þyngd
20 - 30 kg.
Heimild: www.hvuttar.net