Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Enskur Bulldog.

Lýsing
Enski Bulldog er kröftugur, kjarkmikill, harðger, jafnlyndur, og virðulegur hundur. Þrátt fyrir nokkuð vígalegt útlit er hann ástúðlegur hundur, rólegur, hljóðlátur og hefur frábæran persónuleika. Hann er einstakur leikfélagi fyrir börn og tengist sterkum böndum við eiganda sinn. Ákveðin þjálfun er nauðsinleg. Bulldog þráir mannlegt samfélag og verður að fá næga athygli. Hann þolir illa heita veðráttu vegna öndunarörðuleika en þolir borgarlíf mjög vel.

Uppruni
Enski Bulldog er talinn kominn af fornum Mastiff hundum af Asísku blóði, bardagahundum sem komu til Bretlands með Fönikíumönnum. Nafnið endurspeglar fyrri not hans, Bulldog var notaður sem bolabeita, nautaat þar sem hundum er att á naut. Þegar hundaslagsmál voru bönnuð í Bretlandi 1830 varð Bulldog nærri því útdauður. Ræktandi að nafni, Bill George hóf að rækta ársárargirnina úr Bulldog og tegundin varð þá vinsæl sem gæludýr. Fyrsta ræktunarmiðið var skrifað árið 1875.

Umhirða
Regluleg burstun. Þurrka þarf yfir andlitið á hverjum morgni með rökum klút, hreinsa þarf vel innan úr öllum hrukkum. Klippa þarf klær eftir þörfum.

Hreyfing
Bulldog þarf reglulega hreyfingu, en passa þarf vel upp á að ofgera þá ekki vegna öndunarerfiðleika.

Leyfilegir litir
Samfelldur litur með svartri grímu eða trýni. Samfeldir litir eru: rauður, ljósgulbrúnn, bröndóttur, hvítur eða svartskjóttur (hvítur ásamt ofangreindum litum). Lifurlitur, svartur, eða gulbrúnn eru óæskilegir.

Staðreyndir

Upprunaland: Bretland
Upprunatími: 1800
Fyrstu not: Sem bolabeita
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 7-9 ár
Önnur nöfn: Bulldog, Bolabítur

Hæð á herðakamb
U.þ.b. 30 sm.

Þyngd
Eftirsóttasta þyngd Bolabítsrakka er 25 kg
og tíkur 22.7 kg.
Heimild: www.hvuttar.net