Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Doberman.

Lýsing
Þetta er ekki hundur fyrir hvern sem er. Hann þarfnast áreiðanlegs eiganda sem er heiðarlegur og stendur á sínu með þolinmæði og mildi. Dobermann er ofsalega tryggur og trúr eiganda sínum og honum er hægt að treysta með börnum. Hann er fæddur verndari og er varkár gagnvart ókunnugum. Í grundvallaratriðum friðsamlega elskulegur, Dobermann er tilfinningalega viðkvæmur og líkar ekki átök. Í dag er Dobermann ræktaður sem félagi og vinnuhundur um allan heim. Í sumum ræktunarlínum eru hundarnir taugaveiklaðir og styggir en ef þið veljið ykkur góðan og ábyrgan ræktanda fáið þið góðan hund. Dobermann er greindur, hugaður, fjörugur, tryggur og hlýðinn.

Uppruni
Louis Dobermann skattheimtumaður skapaði Dobermann hundinn, til að fá óttalausan varðhund til að vernda hann, þegar hann fór um og innheimti skatta. Í kringum 1870 blandaði hann saman nokkrum stórum, sterkum hundum þ.á.m. Svarta og gulbrúna fjárhundi, Þýska Pinscher, Þýska fjárhundi, Beauceron, og Rottweiler. Útkoman var árvakur vinnuhundur, varðhundur, sveitahundur og lögregluhundur. Í veiði, var Dobermann notaður til að fæla burt rándýr. Seinna var nýju blóð bætt við, greinilega Svarta og gulbrúna Terrier og líklega Greyhound. annars er ekki vitað með vissu hvernig Louis Dobermann skapaði Dobermann hundinn, því hann tók ,,uppskriptina" með sér í gröfina. Árið 1910 var ræktunarmið Dobermann skrifað. Í fyrri heimstyrjöldinni var Dobermann notaður við gæslu, sem vörður í herbúðum, og notaður sem varðhundur fyrir hermenn sem blinduðust í stríðinu.

Umhirða
Regluleg burstun.

Hreyfing
Dobermann er orkumikill og stór hundur, Hann þarf mikla hreyfingu og pláss til að fá útrás fyrir orku sinni. Hann þolir ekki að vera bundinn upp eða lokaður inni.

Leyfilegir litir
Svartur eða brúnn með hreinum skilgreindum gulbrúnum flekkjum á trýni, kinnum, hálsi, bringu, leggjum og þófum.

Staðreyndir

Upprunaland: Þýskaland
Upprunartími: 1800
Fyrstu not: Varð- og vinnuhundur, félagi
Í dag: Félagi og vinnuhundur
Lífsskeið: 11 ár
Önnur nöfn: Doberman Pinscher

Hæð á herðakamb
Rakkar 68 - 72 sm.
Tíkur 63 - 68 sm.

Þyngd
Rakkar 40 - 45 kg.
Tíkur 32 - 35 kg.

Heimild: www.hvuttar.net