|
| |
| |
|
 |
Dalmatíuhundur.
Lýsing
Harðger og sprækur, Dalmatian hefur frábært þol og var
fyrst notaður sem dráttarhundur, hann fylgdi hestvögnum
og varði farþegana frá ræningjum. Rólegur,
viðráðanlegur, ástúðlegur og mjög blíður með börnum.
Dalmatian er ágætis félagi og gæludýr. Hann geltir
sjaldan, og á ekki að vera árásargjarn, og er fremur
fjarlægur ókunnugum, það gerir hann góðan varðhund. Hann
þarf rétta þjálfun sem ætti að byrja snemma. Dalmatian
er harður og sprækur hundur
Uppruni
Talið er að Dalmatian sé uppruninn á
Miðjarðarhafssvæðinu. Hann var nefndur eftir Dalmatia,
annað hvort vegna þessa að það er fæðingarstaður hans
eða hann var notaður á þessu svæði á meðan á Balkan
stríðinu stóð. Dalmatian er talinn vera komin af nú
útdauða Bengal Bendir, sem var blandaður við Bull
Terrier og Enska Bendir. Á 17 öld var Dalmatian vinsæll
í Vatikaninu. Á 18 öld á Englandi, var hann haldin hjá
aðalnum til að fylgja eftir og verja hestakerrur þeirra
og fékk hann þá gælunafnið “vagnshundur.” Í
Bandaríkjunum var Dalmatian ættleiddur af
slökkviliðsmönnum, sem lukkudýr þeirra. Walt Disney’s
kvikmyndin Myndin ,,101 Dalmatians” hjálpaði til við
vinsældir tegundarinnar
Umhirða
Bursta þarf feld Dalmatian reglulega, þá með vaskaskinns
hanska svo hann gljái. Klippa klær reglulega. Dalmatiner
fer nokkuð mikið úr hárum.
Hreyfing
Dalmatian þarf næga hreyfingu daglega.
Leyfilegir litir
Perluhvítur bakgrunnur. Svörtu afbrigðin hafa dökksvarta
bletti í stærð smápenings; Brúnu afbrigðin hafa lifur
brúna bletti í stærð smápenings. Blettirnir ættu ekki að
blandast saman en þess í stað að vera hringlóttir,
greinilegir, aðskildir, vel dreifðir, og 2-3 sm í
þvermál. Blettir á höfði, skotti, og útlimum ættu að
vera minni.
Staðreyndir
Upprunaland: Miðjarðarhafssvæðið
Uppruna tími: Miðaldir
Fyrstu not: Varð- og burðarhundur, veiðihundur
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 12 ár
Hæð á herðakamb
Hæð rakka 56 - 61 sm. Hæð tíka 54 - 59 sm.
Þyngd
Rakka u.þ.b. 27 kg. Tíkur u.þ.b. 24 .kg
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|