Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Coton de tuléar.

Lýsing
Sterkbyggður, mjög fjörugur, vinalegur en þrjóskur. Coton De Tuléar semur yfirleitt ágætlega við börn og verður mjög háður eiganda sínum og heimili. Hann er góður varðhundur og lætur heyra í sér ef einhver ókunnugur nálgast húsið. Nokkuð erfitt getur reynst að þjálfa Coton. Hann er rólegur heimilishundur. Mörgum Cotonum líkar vel að synda. í Madagaskar, var hann m.a. notaður sem varðhundur og til að útrýma rottum og öðrum skaðvöldum. Coton De Tuléar er látlaus, strangviljugur en mjög ástúðlegur, og getur verið árásagjarn gagnvart öðrum hundum. Coton De Tuléar þarf ákveðna þjálfun, sem ætti að byrja snemma.

Uppruni
Í margar aldir, var Coton De Tulear uppáhalds Gæludýr ríka yfirstéttar fólksins í suður Madagaskar. Þar í landi þróaðist tegundin frekar. Nafnið fékk hann vegna Bómullarkennda feldarins, Coton De Tulear er af Bichon tegund. Forfeður hans voru rottuveiðarar sem komið var með til Madagascar með Frönskum sjóliðum. Þeir eru nú útdauðir en tegundin var bætt með kynblöndun við Maltese, aðalega. Nýja tegundin var nefnd eftir Borg í Madagascar, ,,Tuléar.” Árið 1970 var tegundin viðurkennd af FCI.

Umhirða
Bursta og kemba þarf honum daglega. Coton þarf reglulegt bað og faglega snyrtingu 3-4 sinnum á ári. Coton er með bómullarkenndan og því nokkuð erfiðan feld til að snyrta, en feldgerðin gefur honum skemmtilegt lubbalegt útlit. Hann fer ekki úr hárum.

Hreyfing
Coton De Tulear nýtur þess að fá að hlaupa laus, og getur fylgt eiganda sínum langar vegalengdir. Hann þarf nokkuð mikla, daglega hreyfingu. Hann hefur óbeit á því að vera skilinn einn eftir.

Leyfilegir litir
Hvítur, smá gulir blettir, aðalega á á eyrum, viðunandi.

Staðreyndir

Upprunaland: Madagaskar/Frakland
Upprunatími: 1600
Fyrstu not: Félagi
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 13-14 ár

Hæð á herðakamb
Rakkar 25 - 32 sm. Tíkur 22 - 28 sm.

Þyngd
Rakkar 4 - 6 kg. Tíkur 3.5 - 5 kg.
Heimild: www.hvuttar.net