Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Collie Rough.

Lýsing
Þessi virki og líflegi hundur er að jafnaði yfirvegaður, en getur verið ákafur og styggur. Þetta er blíður og viðkvæmur ,,Lassie" hundur, sem er tryggur félagi. Collie er fálátur gagnvart ókunnugum, en þó ekki árásagjarn. Þjálfun ætti að vera ákveðin, en varfærinn. Eftir að Viktoría drottning fékk sér Rough Collie sem félaga, jukust vinsældir tegundarinnar, en það var ekki fyrr en Hollywood uppgötvaði Rough Collie og gerði myndina um Lassie, sem tegundin náði heimsvinsældum. Collie er auðveldur í þjálfun , skemmtilegur og tryggur félagi.

Uppruni
Tegundin er komin af skoskum fjárhundum. Þegar rómverjar gerðu innrás, blönduðust þeirra hundar við innfædda hunda. Rough Collie er uppruninn á köldu svæði Norður Skotlands. Þar var tegundin notuð við smölun. Hundurinn var upprunarlega með styttri leggi og trýni.

Umhirða
Bursta þarf feldinn að minnsta kosti tvisvar í viku, oftar þegar hundurinn er að fara úr hárum. Klær eru klipptar eftir þörfum, böðun þegar þess er á þörf.

Hreyfing
Rough Collie þarf góða daglega hreyfingu. Einnig regluleg lausahlaup.

Leyfilegur litur
Þrír litir eru viðurkenndir: Gulur og hvítur, þrílitur, og blá yrjóttur.

Staðreyndir

Upprunaland: Bretland
Upprunartími: 1800
Fyrstu not: Smalahundur
Í dag: Félagi.
Lífsskeið: 12-13 ár
Önnur nöfn: Skoskur Collie

Hæð á herðakamb
56 - 61 sm.

Þyngd
Rakkar 20 - 29 kg. Tíkur 18 - 25 kg.

Heimild: www.hvuttar.net