|
| |
| |
|
 |
Cavalier
king charles spaniel.
Lýsing
Cavalier er vinalegur, kátur og blíður hundur, sem hefur
orðið gífurlega vinsæll um allan heim. Á marga vegu er
þetta fyrirtaks fjölskylduhundur og félagi. Cavalier er
harðger, mjög félagslyndur og barnelskur. Hann er af
þægilegri stærð, hann er með stærstu smáhundunum.
Cavalier þolir vel kalda veðráttu og er tiltölulega
auðveldur í þjálfun. Virkur, þokkafullur, ástúðlegur og
óttalaus. Þessi litli spaniel var veiðihundur sem rak
upp bráð, þefaði hana uppi og kom auga á hana. Cavalier
geltir yfirleitt ekki óhóflega, og er ekki heppilegur
varðhundur. Hann er greindur og kröftugur hundur.
Uppruni
Heimaland Cavalier er England en almennt er talið að
hann eigi ættir sínar að rekja til Kína eða Japan. Árið
1920, kom Amerískur maður að nafni Roswell Eldridge á
Crufts hundasýninguna í London í leit að King Chales
Spaniel hundum með langt trýni, eins og sáust á
málverkum eftir Van Dyck, af Karli konungi II og spaniel
hundunum hans. Cavalier var nær útdauð tegund í lok 19.
aldar en náði sér þó aftur á strik í kringum 1960. Árið
1940 var Cavalier viðurkennd tegund, en áður var hann
sagður vera sama tegund og King Charles Spaniel.
Umhirða
Dagleg burstun og reglulegt bað. Fylgjast þarf með augum
og eyrum.Cavalier fer nokkuð mikið úr hárum.
Hreyfing
Cavalier þarf meðalmikla hreyfingu en sættir sig þó við
það sem eigandinn býður honum. Hann elskar útivist og að
fá að hlaupa laus. Nauðsinlegt er fyrir Cavalier
eigendur að hafa aðgang að garði.
Leyfilegir litir
Blenheim: kastaníubrúnir flekkir á perluhvítum grunni.
Þrílitur: perluhvítur með svörtum flekkjum með brúnu á
kinnum, yfir augum, innanfótar og undir skotti.
Rúbínrauður: einlitur kastaníubrúnn. Svartur og
gulbrúnn: hrafnsvartur með brúnum flekkjum á kinnum,
doppur yfir augum, innan í eyrum, á bringu , fótum og
undir skotti.
Hæð á herðakamb
25 - 34 sm.
Þyngd
5 - 9 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|