Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Bullmastiff

Lýsing
Aktífur, fimur, sterklega byggður hundur, Bullmastiff býr yfir miklu þoli. Hann samsvarar sér vel í byggingu. Bullmasiff er einlægur, hugrakkur og árvakur hundur, sem gerir hann af góðum varðhundi. Samt sem áður er hann tryggur og blíður að eðlisfari, og yfirleitt heppilegur með börnum . Bullmastiff hefur mjög gott lyktarskyn og ríkjandi persónuleika. Þjálfa þarf hundinn snemma og af kostgæfni. Bullmastiff hefur verið notaður sem lögreglu- og herhundur.

Uppruni
Bullmastiff er komin af kynblöndum Enska Bulldog við Enska Mastiff. Bullmastiff er hraður og aktífur eins og Bulldog, og stór og þungur eins og Mastiff. Tegundin var sköpuð á 19.öld til þess m.a. að verja svæði. Tegundin var viðurkennd árið 1924.

Umhirða
Feldhirða er ekki mikil, böðun þegar þess er þörf. Þrýfa þarf innan úr fellingum í andliti. Bullmastiff á ekki að sofa á hörðum flöt eða hrjálegum því þá geta myndast þykkildi á olnboga og hné.

Hreyfing
Bullmastiff þarf sitt pláss og næga hreyfingu.

Leyfilegir litir
Öll litbrigði af bröndóttum, rauðum og gulbrúnum. Hvítur blettur á bringu er leyfilegur. Dökkur litur skal vera í kringum augu.

Staðreyndir

Upprunaland: Bretland
Upprunartími: 1800
Fyrstu not: Varðhundur
Í dag: Félagi og varðhundur
Lífsskeið: 10 - 12 ár

Hæð á herðakamb
Rakkar 63 - 68 cm.
Tíkur 61 - 66 cm.

Þyngd
Rakkar 50 - 59 kg.
Tíkur 41 - 50 kg
Heimild: www.hvuttar.net