Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Briard.

Lýsing
Tegundin minnir svolítið á bangsa. Briard er stoltur, kraftmikill sporthundur. Hann er fimur, yfirvegaður, hugrakkur, skynsamlegur, og þróttmikill. Undir dugmikla ytra borði liggur hjarta úr gulli. Briardinn er mjög ástúðlegur eiganda sínum og leikur vel við born. Hann er fálátur við ókunnuga. Rakkinn vill oft ríkja yfir öðrum hundum. Ákveðinn, kröfuhörð þjálfun krefst frá unga aldri fyrir þennan fremur þrjóska, sjálfstæða hund. Hann nær ekki fullum þroska fyrr en um 2 ára aldurinn. Briard er einnig afbragðs fjárhundur og ver feldurinn hann fyrir kaldri veðráttu. Briard er fimur, yfirvegaður, hugrakkur, vitur og þróttmikill.

Uppruni
Briard er afkomandi Barbet og Berger de Beauce. Briard gætti upprunalega að sauðfé um allt Frakkland. Í fyrri heimstyrjöldinni var Briard notaður sem varðhundur.

Umhirða
Feldurinn ætti að vera burstaður og greiddur reglulega til að halda honum flókalausum. Það fylgir þessum hunda nokkuð mikil feldhirða, böðun reglulega, því hreinn feldur flækist síður. Briard fer ekki úr hárum.

Hreyfing
Þessi kröftugi, athafnasami hundur, þarf mikið pláss og hreyfingu. Hann er ekki hentugur fyrir borgarlíf.

Leyfilegur litur
Allir samfelldir litir (að frátöldum hvítum), brúnn, mahóní og tvílitur. Dökkir litir eru æskilegri.

Staðreyndir

Upprunaland: Frakkland
Upprunartími: Miðaldir/1800
Fyrstu not: Fjárgæsluhundur
Í dag: Félagi og Vinnuhundur.
Lífsskeið: 11-13 ár.
Önnur nöfn: Berger De Brie

Hæð á herðakamb
Rakkar 62 - 68 sm. Tíkur 56 - 64 sm.

Þyngd
30 - 40 kg.

Heimild: www.hvuttar.net