|
| |
| |
|
 |
Boxer.
Lýsing
Þetta er kröftugur, ákafur, sjálfsöruggur hundur, sem
vill vera ríkjandi. Boxer á að vera rólegur,
yfirvegaður, og félagslyndur. Hann myndar sterk bönd við
fjölskyldu sína, og sýnir mikla tryggð. Árvakur og á
verði gagnvar ókunnugum, hann sýnir óttalaust hugrekki í
hlutverki hans sem verndari og varðhundur. Þjálfun ætti
að byrja mjög snemma. Fullþroskaður Boxer er sterkur og
kraftmikill hundur þess vegna er nauðsinlegt að hann sé
vel þjálfaður, annars getur hann verið erfiður. Hann er
einnig barngóður og þolir borgarlíf vel ef hann fær næga
hreyfingu.
Uppruni
Eins og allir Mastiff, eru forfeður Boxers, fyrir utan
austræna Molossians, tegundir sem voru notaðar til
hundaslagsmála og einnig verndara gegn villtum dýrum.
Þýski Bullenbeisser (nú útdauður) var blandaður við
Enska Bulldog til að skapa nútíma Boxer hundinn árið
1890. Boxerinn var fyrst sýndur árið 1896 í Þýskalandi,
tuttugu hundar voru sýnir og voru þeir mjög ólíkir og
lögð var mikil vinna í að staðla tegundina.
Ræktunarmiðið var samþykkt einhverjum 10 árum seinna.
Tegundin var notuð af Þýska hernum í fyrri
heimstyrjöldinni. Boxer er mjög vinsæll sem félagi og
varðhundur.
Umhirða
Stuttur feldur Boxer þarf litla umhirðu. bursta þarf
yfir hann af og til og gott er aðstrjúka yfir hann með
vaskaskinns hanska þar til hann glansar. Hrukkur í
andliti þarf að þrýfa vel reglulega og halda verður þeim
þurrum og hreinum.
Hreyfing
Boxer verður að fá næga daglega hreyfingu.
Leyfilegir litir
Boxer-hundar eru ýmist gulbrúnir eða bröndóttir.
Gulbrúnn litur getur verið í ýmsum tónum, frá mjög
ljósum upp í dökkan rauðbrúnan lit. Fallegastur þykir þó
rauðbrúnn litur, sem er mitt á milli hins ljósa og
dökka. Gríma á trýni á að vera svört. Bröndóttir hundar
í þeim litum sem nefndir hafa verið, hafa svartar rendur
sem liggja í sömu átt og rifbein. Grunnlitur er ólíkur
röndunum, svo þær sjáist vel. Hvítur litur með grunnlit
er fallegur og er hann leyfilegur.
Staðreyndir
Upprunaland: Þúskaland
Uppruna tími: 1850
Fyrstu not: Varðhundur og bolabeita
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 10 - 12 ár
Hæð á herðakamb
Rakkar 57 - 64 sm. Tíkur 53 - 60 sm.
Þyngd
25 - 30 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|