Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Borzoi.

Lýsing
Tignarlegur og þokkafullur. Mjög göfuglyndur, af því virðist ósnortinn. Borzoi hefur frábært úthald og er oft mjög háður eiganda sínum. Hann er ekki mjög þolinmóður við börn. Borzoi er áhugalaus og jafnvel óvinveittur við ókunnuga. Hann er góður varðhundur en geltir sjaldan. hann getur bitið aðra hunda og er ekki treystandi með smærri dýrum s.s. kanínum og köttum. Borzoi er viðkvæmur og árvakur hundur.

Uppruni
Borzoi gæti líklega verið útkoman af blöndun Asíska Greyhound við Saluki með Rússneskum fjárhundum, eða þá Arabískur Greyhound blandaður við síðhærða rússneska hunda. Borzoi var lengi uppáhalds hundur Rússneskra fjölskyldna sem notuðu hann við úlfaveiðar. Hann var sendur fyrst til Englands árið 1842 sem gjöf til Alexöndru prinsessu. Hann barst svo til vestur Evrópu árið 1850 og til Ameríku 1889. Rússneska biltingin batt enda á ræktun kynsins og hafa evrópskir ræktendur unnið við að vernda Borzoi og síðar barst hann á ný til Rússlands.

Umhirða
Bursta þarf feldinn 2-3 í viku. Aftan á framfótunum, á kviðnum og rófunni er löng hár, þau þarf að bursta vel. Klær eru klipptar eftir þörfum.HREYFINGHann er ekki hentugur fyrir íbúðarlíf. Borzoi þarf mikið pláss og mikla hreyfingu. Það ætti að hafa hann í ól í göngutútum um hverfi, því hann gæti reynt elta ketti og önnur dýr.

Leyfilegir litir
Hvítur, sérhvert litbrigði af gull: silfraður gull; Gull skyggður. Svart skyggður gulbrúnn með dökkt trýni og fætur; Grár, gull, gulbrúnn eða grábröndóttur með löngum rákum af dökkari litbrigðum; Gulbrúnn, svartur. Gulbrúnir flekkir eru leyfðir en ekki æskilegir. Allir litir eru flekkóttir á hvítum grunni.



Staðreyndir

Upprunaland: Rússland
Upprunartími: Miðaldir
Fyrstu not: Við úlfaveiðar
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 11-13 ár
Önnur nöfn: Rússneskur Úlfhundur

Hæð á herðakamb
Rakkar 75 - 85 sm. Tíkur 68 - 78 sm.

Þyngd
Ekki skilgreind.

Heimild: www.hvuttar.net