|
| |
| |
|
 |
Bichon frise
Lýsing
Bichon Frise er algjör gullmoli. Aðlögunarhæfur, kátur,
djarfur og fjörugur lítill hundur. Bichon hefur verið
vinsæll frá 1970. Um leið og hann er að vanda
gæluhundur, er hann harðger og sterkbyggður um leið.
Bichon er barngóður hundur einnig góður með öðrum hundum
og dýrum. Hann er auðveldur í þjálfun, greindur, mjög
kátur og blíður. Bichon Frise er tilvalinn félagi, fyrir
unga sem aldna. Hann þarf samviskusama þjálfun.
Uppruni
Uppruni Bichon Frise er en óljós. Á 15 öld var hann
orðin vinsæll hjá yfirstéttarfólki. Bichon Frise var
vinsæll fjölleikahús hundur, því kenna mátti honum
margt. Hann var eitt sinn talinn Spænskur að uppruna og
var þá kynntur af Spænskum skipverjum fyrir
kanaríeyjunum á 14 öld. Hann var því lengi kallaður
Tenerife hundur eða Bichon Tenerife eftir höfuðborg
eyjanna. Tegundin var svo bætt með því að kynblanda
Maltese við litla Barbet hunda og Poodle. Viðurkenndur
árið 1972.
Umhirða
Bichon Frise þarf daglega burstun og mánaðarlegt bað.
Hann ætti að vera fagmannlega snyrtur á 3 mánaða fresti,
sérstaklega ef um sýningarhund er að ræða. Fylgjast þarf
með augum og eyrum. Bichon fer ekkert úr hárum og hentar
yfirleitt ofnæmisfólki.
Hreyfing
Bichon Frise líkar ekki að vera skilinn eftir einn. Hann
þarf nokkuð langar, daglegar gönguferðir en sættir sig
við það sem eigandinn býður honum.
Leyfilegir litir
Perluhvítur.
Staðreyndir
Upprunaland: Frakkland/Belgía
Upprunatími: Miðaldir
Fyrstu not: Félagi
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 14 ár
Önnur nöfn: Tenerife dog, Bichon Tenerife
Hæð á herðakamb
Ekki hærri enn 30 sm.
Þyngd
ekki skilgreind.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|