|
| |
| |
|
 |
Beagle.
Lýsing
Beagle er kátur, hugrakkur hundur sem er mjög virkur,
orkumikill, og ákveðinn. Hann er skjótur, greindur og
jafnlyndur. Beagle hefur háa rödd og næmt lyktarskyn.
Hann er ákafur og dugmikill að rekja slóð. Beagle getur
unnið einn og í flokk. Þessi litli, fjölhæfi
flokkshundur er notaður við veiðar á héra, kanínum,
refum, hjartardýrum og villisvínum. Í Englandi er hann
notaður eingöngu sem héraveiðihundur. Ástúðlegur og
góðlyndur, Beagle er góður og blíður fjölskylduhundur
sem er þó þrjóskur og sjálfstæður, og því kannski ekki
heppilegur sem fyrsti hundur. Hann þarf ákveðna þjálfun.
Hugrakkur og kátur hundur sem er mjög aktífur og
orkumikill. Greindur, snar og yfirleitt jafnlyndur.
Uppruni
Þetta er mjög forn ensk tegund. Beagle var í miklu
uppáhaldi hjá Henry Konungi VIII og Elísabetu drottningu
I. Til voru þá þrjú afbrigði af tegundinni, stærðin var
þá mismunandi. Beagle hefur orðið mjög vinsæll um allan
heim bæði sem heimilishundur og veiðihundur.
Umhirða
Burstun reglulega, aðalega þegar hundurinn fer úr hárum.
Fylgjast þarf vel með eyrum. Klær klipptar eftir þörfum.
Hreyfing
Beagle getur aðlagað sig að borgarlífi en hann þarf
mikið pláss og hreyfingu.
Leyfilegir litir
Allir viðurkenndir Hound litir, (að frátöldum lifur).
Þrílitur (hvítur, svartur og sterkur gulbrúnn); Trýni og
endi skottsins hvítt. - Tvílitur; Ljósgulur og gulbrúnn,
sterkur gulbrúnn og hvítur.
Staðreyndir
Upprunaland: Bretland
Upprunatími: 1300
Fyrstu not: Héra/kanínuveiðar
Í dag: Félagi, veiðihundur.
Lífsskeið: 13 ár
Önnur nöfn: Enski Beagle
Hæð á herðakamb
33 - 44 sm.
Þyngd
15 - 20 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|