|
| |
| |
|
 |
Basset
Hound.
Lýsing
Basset Hound er traustur og seigur. hann veiðir með
nefinu og vinnur ósjálfráður í flokkum. Hann hefur djúpa
hljómþýða rödd og hann hræðist ekki klungur. Basset
hefur frábært þol, hann er friðsæll og nær aldrei
árásagjarn. Reyndur flokkshundur sem rekur slóð kanína,
héra, villisvína og hjartardýra. Ástúðlegur, blíður, en
getur verið þrjóskur, hann er frábær fjölskylduhundur og
gegnir aðalega því hlutverki í dag. Nokkuð viðkvæmur,
góður með börnum og öðrum hundum, ekki hentugur sem
varðhundur.
Uppruni
Enskir ræktendur blönduðu Frönskum Bassetum (Artesian
Norman Basset, Artois Basset, og Ardennes Basset) saman
til að fá út Basset Hound. Fyrsta ræktunarmiðið var
skrifað 1887.
Umhirða
Regluleg burstun, fylgjast þarf með eyrum og augum.
Basset þolir hita illa.
Hreyfing
Basset Hound þarf nokkuð mikla hreyfingu og pláss. Passa
skal að láta hann ekki hoppa mikið því þá gæti hann
orðið bakveikur.
Leyfilegir litir
Oftast þrílitur (svartur, gulbrúnn og hvítur); tvílitur
(Ljósgulur og hvítur), en allir hound litir leyfilegir.
Staðreyndir
Upprunaland: Frakkland/England
Upprunatími: 1500
Fyrstu not: Kanínu/héra veiðar
Í dag: Félagi, veiðihundur.
Lífsskeið: 12 ár.
Hæð á herðakamb
33 - 38 sm.
Þyngd
25 - 30 kg
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|