|
| |
| |
|
 |
Basenji.
Lýsing
Eins og úlfurinn geltir hann ekki heldur ýlfrar og
jóðlar. Basenji er fjörugur, ástúðlegur og skemmtilegur
félagi ef eigandinn þjálfar hann vel frá hvolpæsku. Hann
er snjall en nokkuð erfiður í þjálfun. Basenji getur
verið fjarlægur en getur einnig bundist ströngum og
traustum böndum við húsbónda sinn. Hann er yfirleitt
alltaf barngóður, en ekki ætti að treysta honum einum
með öðrum gæludýrum s.s. kanínum, naggrísum eða köttum,
því veiðieðlið í þeim er mikið. Þeir hafa gaman af því
að naga, þannig að sniðugt væri að gefa þeim næg
leikföng og bein. Basenji er illa við blauta veðráttu,
hann er mjög snyrtilegur. Þessari tegund líkar ekki að
vera skilin eftir einn. Basenji er forvitinn, og getur
einnig verið þrjóskur og sjálfstæður. Hann er leikglaður
og kátur hundur, getur verið svolítið hrekkjóttur.
Uppruni
Basenji er ein af elstu hundategundum heims. Uppruni
hans er en dulinn. Í Afríku voru þeir notaðir í mörg
hundruð ár sem veiðihundar, jafnvel en í dag eru þeir
notaðir sem slíkir og hafa þeir mjög sterkt veiðieðli.
Forfeður Basenji, ,,Tesem" og Egypskur Hound voru ristir
í veggi grafhýsa Faraóa. Líkami hans lítur út eins og
dverg útgáfa af frænda hans Ibizan Hound. Tegundin var
flutt til Bretlands í kringum 1930 og til Bandaríkjanna
í kringum 1940.
Umhirða
Basenji er kattþrifin, stuttur feldur hans þarf litla
umhirðu. Hann fer lítið sem ekkert úr hárum.
Hreyfing
Basenji hefur gaman að útivist og hreifingu, hann þarf
daglega, meðallanga göngutúra. Það ber að varast að hafa
þá lausa nálægt umferð.
Leyfilegir litir
Svartur og hvítur, rauður og hvítur, svartur og gulbrúnn
og hvítur með gulbrúnum flekkjum fyrir ofan augu og
gulbrúnt trýni, ljósgulbrúnn og hvítur. Hvítur á fótum,
bringu og á enda skottsins.
Staðreyndir
Upprunaland: Afríka
Upprunatími: Fornöld
Fyrstu not: Veiðihundur
Í dag:Félagi
Önnur nöfn: Congo Dog
Hæð á herðakamb
Hæð rakka 43 sm. Hæð tíka 40 sm.
Þyngd
Rakkar 11 kg. Tíkur 9.5 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|