Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Amerískur Cocker Spaniel.

Lýsing
Ameríski Cocker Spaniel er vinsælastur Amerískra hunda. Hann er sterkbyggður og hraður hundur. Ameríski Cockerinn er góður félagi, létt- og jafnlyndur hundur, afslappaður og kátur að eðlisfari. Hann er gæludýr og sýningarhundur frekar en veiðihundur í dag. Sem veiðihundur sem hann er sjaldan notaður sem í dag, nýtist hann til þess að sækja litla bráð og fæla fugla úr fylgsnum. Ameríski Cockerinn er þrjóskur, og er óháður og ákafur. Hann tengist fjölskyldunni sterkum böndum, og er yfirleitt barngóður.

Uppruni
Ameríski Cockerinn var viðurkenndur af Ameríska hundaræktunarfélaginu (AKC) árið 1946. Ameríski Cocker Spaniel er beinn afkomandi Enska Cocker Spaniels. Í kringum árið 1880 var sá Enski kynntur fyrir Ameríku, þar sem ræktendur vildu úr honum þróa lítinn félaga og sýningarhund með einstakan, þykkan feld og styttra tríni en sá Enski. Ameríski Cockerinn hefur þó en eðlislægt veiðieðli.

Umhirða
Bursta þarf feldinn daglega og baða þarf hann reglulega, eða á u.þ.b. viku fresti. Einnig þarf að snyrta og klippa feldinn, sérstaklega ef um sýningarhund er að ræða, þá þarf feldurinn talsverða umhirðu. þá er best er að fara með hann til fagsnyrtis. Sumir eigendur kjósa að klippa feldinn stuttan þá verður feldhirðan þar af leiðandi minni. Augun þurfa að vera hreinsuð reglulega, og fylgjast þarf með síðum eyrunum.

Hreyfing
American Cocker Spaniel þarf meðalmikla og reglulega hreyfingu.

Leyfilegir litir
Allir einlitir eru leyfilegir. Smá hvítur litur á bringu og/eða á hálsi er leyfilegur. Yrjóttur (roan) er flokkaður sem marglitur. Marglitur (parti-color): Tveir eða fleiri vel brotnir/aðskildir litir, einn af þeim verður þó að vera hvítur. Tan (gulbrúnir) flekkir ná yfir ljósustu kremliti upp í þann dekksta rauðan og ættu að hylja ekki meira en 10% af feldinum. einlitir og tan hundar, eins og svartur og tan, hafa tan (gulbrúna) deplar fyrir ofan augun, sitt hvoru megin á trýninu og kinnum, bakhliðinni á eyrunu, á öllum fótum eða leggjum, á bringu og undir skotti.

Staðreyndir

Upprunaland: Ameríka
Upprunatími: 1800
Fyrstu not: Félagi/veiðihundur
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 12 - 13 ár

Hæð á herðakamb
Rakkar 36 - 39 sm. Tíkur 34 - 36 sm.

Þyngd
10 - 13 kg.
Heimild: www.hvuttar.net