|
| |
| |
|
 |
Airdale Terrier.
Lýsing
Airedale Terrier er stærstur Terrier hundanna, hann er
mannblendinn, sjálfsöruggur, vingjarnlegur og greindur,
hann getur líka verið afar góður varðhundur. Auðvelt er
að þjálfa Airedale Terrier og er hann trúr eiganda
sínum. Hann er ágætur með stálpuðum börnum. Airedale
Terrier er hugrakkur og greindur og hefur verið notaður
víða sem lögregluhundur. Einnig voru þeir notaðir í
seinni heimstyrjöldinni sem sendiboðar, þeir fóru á
milli yfirmanna á vígvöllum og fluttu upplýsingar og
skipanir. Airedale Terrierer oft kallaður "konungur
Terrieranna".
Uppruni
Hann var upprunalega þekktur sem Waterside Terrier.
Airdale Terrier þróaðist í Norður-Wales í Englandi, Hann
var til við blöndun Old English Broken Haired Terrier
(sem er nú útdauður) við Black and Tan Terrier og
jafnvel einnig við Otterhound.
Umhirða
Auðvelt er að hirða feld Airedale Terriers undir
venjulegum kringumstæðum. Ef um sýningarhund er að ræða
er þörf á frekari feldhirðu. Burstun tvisvar í viku til
að fjarlægja dauð hár. Feldurinn er klipptur og snyrtur
reglulega fyrir sýningar. Klippa þarf hár á milli þófa.
Hreyfing
Airedale Terrier er stór hundur og hreyfi þörf hans er
meira í líkingu við stærri hundanna heldur en litlu
Terrier tegundirnar. Hann þolir borgarlíf vel ef hann
fær góða hreyfingu daglega.
Leyfilegir litir
Svartur frá hnakka, niður með bakinu og á efri hlið
skottsins. Gulbrúnn á öðrum hlutum líkamans.
Hæð á herðakamb
Rakkar u.þ.b. 58 - 61 sm. Tíkur u.þ.b. 56 - 59 sm.
Þyngd
u.þ.b. 20 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|