Ó, guð vors lands! Ó, lands vors
guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga
nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér
krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund
ár
og þúsund ár dagur, ei meir:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi
tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
:/: Íslands þúsund ár, :/:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi
tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
Ó, guð, ó, guð! Vér föllum fram
og fórnum þér brennandi, brennandi
sál,
guð faðir, vor drottinn frá kyni
til kyns,
og vér kvökum vort helgasta mál.
Vér kvökum og þökkum í þúsund ár,
því þú ert vort einasta skjól.
Vér kvökum og þökkum með titrandi
tár,
því þú tilbjóst vort forlagahjól.
:/: Íslands þúsund ár :/:
voru morgunsins húmköldu,
hrynjandi tár,
sem hitna við skínandi sól.
Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
Vér lifum sem blaktandi, blaktandi
strá.
Vér deyjum, ef þú ert ei ljós það
og líf,
sem að lyftir oss duftinu frá.
Ó, vert þú hvern morgun vort
ljúfasta líf,
vor leiðtogi í daganna þraut
og á kvöldin vor himneska hvíld og
vor hlíf
og vor hertogi á þjóðlífsins
braut.
:/: Íslands þúsund ár :/:
verði gróandi þjóðlíf með
þverrandi tár,
sem þroskast á guðsríkis braut.